Enski boltinn

Flamini samdi við Palace

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Flamini í leik með Arsenal.
Flamini í leik með Arsenal. vísir/getty
Crystal Palace er búið að semja við fyrrum miðjumann Arsenal, Mathieu Flamini.

Flamini, sem orðinn er 32 ára gamall, samdi við Palace út þessa leiktíð.

Samningur Flamini við Arsenal rann út í sumar en hann spilaði alls 246 leiki fyrir Arsenal á ferlinum.

Hann spilaði einnig með AC Milan í fimm ár og varð meistari með félaginu árið 2011.

Flamini er fjórði leikmaðurinn sem Palace fær í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×