Enski boltinn

Eiður Smári: Mourinho hugsar meira um úrslitin en Guardiola

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eiður og Mourinho.
Eiður og Mourinho. vísir/getty
Eiður Smári Guðjohnsen hefur leikið undir stjórn bæði Jose Mourinho og Pep Guardiola en þeir mætast með Manchester-liðin á laugardag.

BBC fékk Eið Smára til þess að tjá sig um stjórana.

„Þeir eru báðir með það á hreinu hvernig þeir vilja að liðið sitt spili,“ segir Eiður Smári.

„Einn helsti munurinn er sá að Guardiola mun ekki breyta leik síns liðs í von um að ná í rétt úrslit. Mourinho myndi gera það. Hann hugsar meira um að ná í úrslit en hvernig liðið spilar.“

Sjá má þetta stutta innslag með Eiði Smára hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×