Enski boltinn

Claudio Bravo, ertu klár?

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Zlatan er kominn með þrjú mörk í ensku úrvalsdeildinni.
Zlatan er kominn með þrjú mörk í ensku úrvalsdeildinni. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester United, skaut létt á Claudio Bravo, nýjan markvörð Manchester City, í myndbandi sem hann birti á Instagram í dag.

Þar sést Svíinn pakka æfingabúnaði í öskju sem er stíluð á Claudio Bravo, Etihad Stadium, Manchester.

Zlatan skrifar svo við myndbandið: „Velkominn til Manchester. Hérna er æfingabúnaður, þú þarft á honum að halda. Sjáumst á laugardaginn.“

Sjá einnig: Dýrasti knattspyrnuleikur sögunnar

Zlatan vísar þarna til leiks Manchester-liðanna á Old Trafford í hádeginu á laugardaginn en þar mætast knattspyrnustjórarnir og erkifjendurnir José Mourinho og Pep Guardiola.

Mikil spenna er fyrir þennan stórleik en bæði lið eru með fullt hús stiga í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×