Fótbolti

Messi útskýrir ljósu lokkana

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi í leik með Argentínu með ljósu lokkana.
Messi í leik með Argentínu með ljósu lokkana. vísir/getty
Argentínumaðurinn Lionel Messi hefur loksins upplýst af hverju hann aflitaði á sér hárið í sumar.

Það vakti eðlilega heimsathygli er myndir náðust af Messi í sumarfríinu sínu þar sem hann var kominn með ljóst hár.

Það hafði gengið mikið á hjá Messi og hann segir þessa breytingu hafa verið nauðsynlega fyrir sig.

„Mér datt þetta bara allt í einu í hug. Mér fannst ég þurfa að byrja upp á nýtt í lífinu og þess vegna gerði ég þetta,“ sagði Messi en hann var í dómsmáli í lok sumars, tapaði svo í úrslitum á Copa America og hætti í kjölfarið með landsliðinu. Honum snérist svo hugur.

Ljósi liturinn er smám saman að renna úr hári Messi og verður áhugavert að sjá hvort hann ætli sér að halda þessum nýja lit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×