Enski boltinn

Özil vill fá tíuna hjá Arsenal

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
"Hey Jack, ég ætla að taka númerið þitt.“
"Hey Jack, ég ætla að taka númerið þitt.“ vísir/getty
Mesut Özil vill fá treyju númer 10 hjá enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal.

Jack Wilshere hefur verið númer 10 hjá Arsenal undanfarin ár en nú er búið að lána hann til Bournemouth.

Özil tók nýverið við tíunni hjá þýska landsliðinu af Lukas Podolski og hann vill gera það sama hjá Arsenal.

„Þetta númer er á lausu og ég vil fá það,“ sagði Özil í samtali við þýska fjölmiðla.

„Þetta númer passar við mig og mína stöðu, sem leikstjórnandi. Þetta er uppáhaldsnúmerið mitt. Goðsagnir eins og Zinedine Zidane, Diego Maradone og Pelé voru með það á bakinu.“

Özil var númer 10 síðustu tvö árin sín hjá Real Madrid en hann hefur verið númer 11 síðan hann kom til Arsenal fyrir þremur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×