Fótbolti

Stuðningsmenn Galatasaray vilja fá víkingaklappið frá Kolbeini

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Sabri Sarioglu stýrir sigursöng Galatasaray en Kolbeinn gæti tekið við.
Sabri Sarioglu stýrir sigursöng Galatasaray en Kolbeinn gæti tekið við. vísir/getty
Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsmaður í fótbolta, gekk í raðir tyrkneska stórveldisins Galatasaray í vikunni á láni frá franska liðinu Nantes. Hann kemur til móts við liðið í fyrsta sinn eftir landsleikjafríið en Kolbeinn og strákarnir okkar mæta Úkraínu á mánudagskvöldið í fyrsta leik liðanna í undankeppni HM 2018.

Kolbeinn verður vonandi í stóru hlutverki hjá Galatasaray og má fastlega reikna með því miðað við hversu hart tyrkneska félagið hefur sóst eftir honum síðastliðið ár. Allavega virðist ljóst að stuðningsmenn Galatasaray, sem eru einir þeir heitustu í Evrópu, ætla honum stórt hlutverk eftir leikina.

Þessir eldheitu stuðningsmenn, sem ekki er sniðugt að styggja mikið, hafa margir hverjir óskað eftir því að Kolbeinn stýri víkingaklappinu sem íslenska landsliðið og stuðningsmenn þess gerðu vinsælt á EM eftir sigurleiki Galatasaray.

Víkingaklappið sigraði heiminn á Evrópumótinu en þar byrjuðu Frakkar að nota það og síðar stuðningsmenn Juventus. Ekki leið svo á löngu þar til það var komið alla leið til Papúa Nýju-Gíneu.

Víkingaklappið eftir sigurinn á Englandi:
Tyrkneskur blaðamaður sem Vísir ræddi við sagði að Twitter-færslurnar um þetta ákall stuðningsmannanna væru nær óteljandi. Þeir vilja ekki bara fá víkingaklappið heldur kalla margir hverjir eftir því að frægum sigursöng Galatasaray verði skipt út fyrir víkingaklappið með Kolbeini.

Í mörg ár hefur tyrkneski varnarmaðurinn og landsliðsmaðurinn Sabri Sarioglu leitt sigursöng Galtatasaray. Þar öskrar hann: „Einn, tveir, þrír,“ áður en allir syngja svo saman „Cimbom bom, sjalla lalla lala lala la.“ Cimbom er gælunafn Galatasaray.

Sarioglu er einn allra vinsælasti leikmaður Galatasaray en þessi 32 ára gamli hægri bakvörður hefur spilað allan sinn feril með liðinu og einnig spilað fyrir öll yngri landslið Tyrklands sem og A-landsliðið.

Svona fagna stuðningsmenn Galatasaray eftir leiki:


Stuðningsmenn Wolves á Englandi hafa einnig tekið víkingaklappið upp á sína arma eftir komu Jóns Daða Böðvarssonar. Það var gert strax eftir fyrsta leik þar sem Jón Daði skoraði jöfnunarmark liðsins.

Stuðningsmennirnir kölluðu eftir að fá Jón Daða til sín og sendi þjálfari hans Selfyssinginn til fólksins að taka víkingaklappið sem hann gerði að sjálfsögðu.

Jón Daði tekur Víkingaklappið:
Kolbeinn gæti nú þurft að fá smá kennslu frá Aroni Einari Gunnarssyni, landsliðsfyrirliða, á meðan íslenska liðið æfir í Frankfurt fyrir leikinn gegn Úkraínu sem fram fer í Kænugarði á mánudagskvöldið.

Það verður svo fróðlegt að sjá hvort Kolbeinn stýri einu góðu víkingaklappi þegar Galatasaray mætir Kayserispor á útivelli í næstu umferð tyrknesku úrvalsdeildarinnar. Liðið er búið að vinna báða sína leiki á tímabilinu.

Hér að neðan má sjá nokkur af þeim tístum þar sem kallað er eftir víkingaklappinu en þau eru vitaskuld á tyrknesku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×