Þurfum að ræða hlutverk og tilgang listarinnar Magnús Guðmundsson skrifar 1. september 2016 11:00 Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor LHÍ, hlakkar til samtalsins við almenning á Fundi fólksins Visir/GVA
Samfélag án lista? Er yfirskrift pallborðsumræðna á Fundi fólksins. Á meðal þátttakenda er Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor LHÍ, og hún segir að skólinn vilji taka þátt í að skapa heilbrigt samtal á milli stjórnmálamanna, skólans og almennings í landinu. „Þetta á ekki bara að snúast um okkar þarfir sem skóla heldur þarfir samfélagsins gagnvart því námi sem við erum að bjóða og er uppálagt að sinna. Við teljum að við getum gert þetta miklu betur en við gerum í dag með fjármagni og stuðningi stjórnmálaaflanna í landinu en það vantar töluvert upp á það. Það snýst allt um það sem er metið í krónum og aurum en það sem við viljum tala um á fundinum er hin hugmyndafræðilega áskorun sem blasir við okkur öllum á tuttugustu og fyrstu öldinni.Skurður og bónus Þessum vangaveltum stillum við upp undir þessum formerkjum: Samfélag án lista? Með því viljum við hvetja fólk til þess að gera sér í hugarlund hvernig líf okkar væri í raun og veru án hlutdeildar listanna. Við erum ekki bara að tala um að leggja niður þessar sjálfsögðu menningarstofnanir, heldur samfélag án útilistar, arkitektúrs, hönnunar á skipulagi, hljóðvist og þannig mætti áfram telja. Þetta er það sem aðrar þjóðir hafa gert að sínum auðæfum og eru að gera út á engu síður en t.d. fisk eða fallvötn.“ Aðspurð hvað valdi því hversu treglega gengur að fá Íslendinga til þess að sjá verðmæti í hinu listræna segir Fríða Björk að það stjórnist eflaust af skorti á hefð. „Þar af leiðandi er líka skortur á virðingu fyrir arfleifðinni. Við gætum þess ekki að varðveita hana af því að hún er svo ung. Listir sem fagsvið atvinnumanna eru ekki nema hundrað ára fyrirbrigði á Íslandi en eru kannski þúsund ára í öðrum samfélögum. Við erum þjóð sem sér helst ávinninginn í því að grafa skurð, eða greiða bónusa fyrir það eða hámarka ávöxtun í bönkum. Þannig að þetta snýst kannski um að snúa almenningsálitinu hvað varðar hina raunverulegu verðmætasköpun í samfélaginu.Lélegir lobbýistar Að auki þá snýst þetta ekki aðeins um hagræn áhrif. Við erum að þjálfa fólk inn í örast vaxandi atvinnugrein á Íslandi sem er skapandi greinar, með um fimmtán til tuttugu þúsund ársverk. Það er meira en landbúnaður og fiskiðnaður til samans. Enginn virðist þó vera að leggja mikið á sig til þess að styðja við þessa grein sem býður þó upp á mestu vaxtarmöguleikana til framtíðar. Við erum að reyna að beina sjónum að þessu enda erum við sá skóli á Íslandi sem er að mennta fólk beinlínis inn í þennan geira. Þannig að við viljum vekja athygli á vægi okkar og hlutverki í samfélaginu sem og í framtíðinni og í því að varðveita fortíðina. Þess vegna viljum heyra skoðanir almennings og jafnframt skapa skilning á meðal stjórnmálamanna. Við erum ekki góðir lobbýistar, fólkið sem vinnur í listunum. Við þurfum að sýna fram á hvernig það sem við erum að gera verður að áþreifanlegum og óáþreifanlegum verðmætum.“Launin afgangsstærð Fríða Björk bendir meðal annars á að það skjóti skökku við að listamenn á Íslandi hafi þurft að gera kröfu til þess að vinna þeirra sé metin í samræmi við vinnuframlag. „Það virðist oft þykja sjálfsagt að gera það ekki. Ef við horfum bara til hagrænna þátta eins og Iceland Airwaves eða myndlistarsýninga í Listasafni Íslands, svo dæmi séu tekin, þá ber listamaðurinn minnst úr býtum. Það fá allir greitt, sendibílstjórinn, málarinn, rafvirkinn, tæknistjórinn og kynningarstjórinn en laun listamanna eru afgangsstærð. Þá getum við velt fyrir okkur hvaða kröfur við gerum til listarinnar um fagmennsku því hún felst ekki aðeins í afurðinni heldur líka því að vera tilbúinn til þess að greiða fyrir hana það sem hún kostar í raun og veru. Öðruvísi getum við ekki fleytt listunum áfram sem eðlilegum og ríkulegum þætti í okkar daglega lífi. Listin er hluti af daglegu lífi okkar allra og við viljum að hún verði það áfram. Listir eru stór þáttur í samfélagsgerðinni og það ætti að taka tillit til þeirra sem raunverulegs hreyfiafls, bæði í hugmyndafræðilegum skilningi og þeim sóknarfærum sem er að finna í þessum skapandi geira. Við þurfum að taka umræðu um þessi mál og það verður forvitnilegt að gera það á laugardaginn í sal Norræna hússins klukkan16.“Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. september.
Airwaves Menning Mest lesið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Lífið Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Tónlist Fleiri fréttir Jói Pé og Króli skrifa söngleik Féll í myndlist en fann sig sem myndlistarmaður Bestu vinkonur sameinast í listinni Bjarni og Sigurður verði ekki myrtir í bók Borgarleikhúsið setur upp Moulin Rouge 250 sýningar af Elly: „Án hennar væri Íslandssagan öðruvísi“ Heitustu stjörnur listarinnar saman í Ásmundarsal Snorri skein skært í hátíðarbrókinni Engin sé uppskeran ef kartöflurnar eru ekki settar niður Verður ýmist í leyfi eða hlutastarfi á listamannalaunum Þessi fá listamannalaun 2025 Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu „Spurning um að fara að sækja réttu kokteilboðin“ Geir og Arnaldur í fangbrögðum á toppnum Í beinni: Dagur íslenskrar tónlistar Reykjavík samdi til þriggja ára við Borgarleikhúsið Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Sjá meira