Fótbolti

Lyon hætti við að fá Adebayor

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Adebayor lék með Crystal Palace á síðustu leiktíð
Adebayor lék með Crystal Palace á síðustu leiktíð vísir/getty
Ekkert verður af því að framherjinn Emmanuel Adebayor gangi til liðs við franska úrvalsdeildarliðið Lyon.

Adebayor sem leikið hefur fyrir lið á borð við Arsenal, Manchester Ciyt og Real Madrid átti að ganga frá samningi við Lyon í vikunni en seinkaði komu sinni til Frakklands sem varð til þess að franska liðið hætti við.

„Olympique Lyonnais hefur hætt við frekari viðræður við Emmanuel Adebayor sem, frá byrjun vikunar, hefur seinkað ferð sinni til Lyon þar til hann kom í gær (föstudag) ti OL Park þar sem Bruno Genesio gat talað við hann,“ sagði í tilkynningu frá franska liðinu.

Adebayor er 32 ára gamall og var ætlað að fylla skarð Alexandre Lacazette sem er meiddur. Adebayor hefði ekki getað leikið með Lyon í Meistaradeildinni fyrir áramót og hann hafði lýst yfir áhuga á að leika í Afríkukeppni landsliða í byrjun næsta árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×