Lífið

Hliðarheimur í Landmannalaugum

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir og Stefán Karlsson skrifa
"Nálægðin við náttúruna er góð og á kvöldin fer ég í laugina og hitti þá marga af viðskiptavinum dagsins.“
"Nálægðin við náttúruna er góð og á kvöldin fer ég í laugina og hitti þá marga af viðskiptavinum dagsins.“ Visir/Stefán
Katla setti upp skilti sem á stóð að í boði væru ókeypis faðmlög. „Viðtökurnar létu ekki á sér standa, fólk hefur bæði gaman og gott af því að fá faðmlag.“
Ferðalangar geta keypt sér heitan mat, vistir eða nytsaman varning til útivistar, sem ef til vill gleymdist að taka með í farangri, í tveimur amerískum skólarútum frá sjöunda áratugnum.



„Ég get loksins unnið við þetta því börnin eru orðin nógu gömul en mig hefur lengi langað til að vera hér,“ segir Katla.
„Þetta er eins og hliðarheimur, menningarútópía,“ segir Katla um hið sérstaka samfélag sem myndast í kringum búðina. „Hingað kemur fólk sem er annaðhvort að leggja af stað í göngu eða að koma úr göngu. Því fylgir mikil gleði og eftirvænting,“ segir Katla sem hefur eignast vini um allan heim vegna starfsins.



Mountain mall býður meðal annars upp á kaffi, te, heitt súkkulaði og ýmsa aðra drykki.
Fjallabúðin er fjölskyldufyrirtæki. Faðir Kötlu, Þorleifur Sívertsen, og móðir hennar, Helga Kristinsdóttir, ásamt bræðrum hennar hófu rekstur úr skottinu á gömlum Land Rover fyrir tuttugu og sex árum og seldu fisk. Nú rekur föðurbróðir Kötlu verslunina.



En hvað skyldi vera óvenjulegasta fyrirspurn frá viðskiptavini? „Inniskór, eða svona flip-flops,“ segir Katla og hlær.
„Það þurfti að grisja í vötnunum og því var veiddur fiskur og eldaður fyrir útivistarfólk. Ef eitthvað var afgangs þá var það selt. Svo vatt reksturinn upp á sig, það vantaði krydd á fiskinn, smjör með, mjólk og brauð. Seinna voru keyptar þessar amerísku skólarútur sem ég held að hafi orðið eftir hér á landi þegar herinn fór,“ segir Katla. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.