Menning

Það er einhver Ove í okkur öllum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þrjóskublesinn Ove hefur sína skoðanir á hlutunum. Siggi Sigurjóns mun koma þeim til skila á sviði Kassans í Þjóðleikhúsinu.
Þrjóskublesinn Ove hefur sína skoðanir á hlutunum. Siggi Sigurjóns mun koma þeim til skila á sviði Kassans í Þjóðleikhúsinu. Vísir/Ernir
Þegar mér var boðið þetta hlutverk þurfti ég ekki lengi að hugsa mig um. En það er dálítill pakki að opna, hafandi þekkt bókina fyrir,“ segir Siggi Sigurjóns sem frumsýnir einleikinn Maður sem heitir Ove nú á laugardaginn í Kassanum.

Hann tekur fram að bókin rúmist ekki öll uppi á sviði. „Það er bara tekin ákveðin lína og ég er fyrst og fremst að túlka leikgerð sem unnin hefur verið upp úr bókinni. Eflaust eru margir búnir að ímynda sér hvernig Ove er – og ég líka – þetta verður mín nálgun. Það er klisja að segja það en þetta er sjálfstætt listaverk, unnið upp úr bók, og hún fer alveg prýðilega ofan í kokið á mér, þessi leikgerð.“

Það sem er fyrst og fremst heillandi við aðalpersónuna er hvað hún er hryllilega óþolandi en líka hvað hún er sjarmerandi og góð manneskja, að sögn Sigga. „Ég held að margir geti speglað sig í Ove þó þeir vilji ekki viðurkenna það. Það er einhver Ove í okkur öllum inn við beinið, að minnsta kosti er fullt af Ove í mér. Það kemur líka í ljós hvaða mann hann hefur að geyma þegar upp er staðið.“

Sýningin er um 70 mínútur og án hlés. Bjarni Haukur er leikstjóri en Siggi er einn á sviðinu og mun túlka ýmsar aðrar persónur en Ove. Nágrannarnir koma mikið við sögu enda fjallar leikritið fyrst og fremst um samskipti Ove við þá. „Þetta hefur verið skemmtileg glíma en erfið. Þótt ég sé alvanur að læra texta er þetta óvanalega stór skammtur í einu. Svo hef ég verið svolítið einmana á sviðinu en það verð ég hins vegar ekki þegar áhorfendur eru komnir í salinn, þá er aðalmótleikari minn mættur og um það snýst leikhúsið.“

En minnir hlutverkið Sigga á eitthvað annað sem hann hefur fengist við. „Nei, þetta er nú eiginlega nýr litur í regnbogann minn á ferlinum og það er voða gaman.“

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 15. september 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.