Menning

Gísli á Uppsölum á svið

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Elfar Logi, Svavar Knútur og Þröstur Leó telja Gísla á Uppsölum vera í liði með þeim.
Elfar Logi, Svavar Knútur og Þröstur Leó telja Gísla á Uppsölum vera í liði með þeim. Vísir/Anton Brink
 „Við stefnum að því fullum fetum að ná landi í Selárdal,“ segir Elfar Logi Hannesson sem er í gervi Gísla á Uppsölum í leikverki sem frumsýnt verður í Selárdalskirkju á sunnudaginn klukkan 14.  Leikstjóri er Þröstur Leó Gunnarsson og Svavar Knútur samdi tónlistina. 

 Elfar Logi segir gerð leikverksins mikið átak eins og við hafi mátt búast.

„Við berum mikla virðingu fyrir Gísla og hans sögu. Hann varð náttúrlega eign þjóðarinnar þegar hann komst í sjónvarpið þó hann væri einfari, en bókin hans, Eintal, er okkar biblía. Þar opnast fleiri gluggar en almenningur þekkir og það er sú hlið sem við viljum koma á framfæri.“   

Um aðra helgi stefna þeir félagar á Þingeyri. Svo finnst þeim við hæfi að Gísli Oktavíus fái að fara um hin ýmsu héruð landsins með sögu sína og taka með opnum hug öllum sem hafa samband við þá.



Selárdalskirkja. Úr gluggum hennar blasa Uppsalir við.Mynd/Gun
Selárdalskirkja verður einstakur sýningarstaður, að mati Elfars Loga.

 „Við fórum í vettvangsferð í dalinn um daginn. Það var þoka alla leiðina frá Bíldudal en um leið og við staðnæmdumst á stéttinni á Uppsölum þá birti til og sólin braust fram. Við teljum að með því hafi Gísli gefið okkur merki um að honum lítist vel á það sem við erum að gera.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.