Menning

Björk fór á kostum á tónleikum í London: „Ég hef aldrei séð Albert Hall bregðast svona við“

Birgir Olgeirsson skrifar
Björk Guðmundsdóttir fær frábæra dóma frá bresku pressunni vegna tónleika hennar í Royal Albert Hall í London í gærkvöldi.

Tónleikarnir eru hluti af sýningunni Björk Digital í Somerset House í Lundúnum sem opnaði 1. september og stendur til 23. október. Björk Digital er sýndarveruleika verkefni þar sem notast er við tónlist af plötu hennar Vulnicura en á sýningunni geta gestir hennar fest á sig sýndarveruleikagleraugu og séð Björk syngja á íslenskri strönd og séð hana syngja Mouthmantra innan úr munni hennar.

 

Tónleikarnir í Royal Albert Hall í gærkvöldi kölluðust Björk Live en hún fær fimm stjörnur í Evening Standard, fjórar stjörnur í The Guardian, fimm stjörnur í The Times og fimm stjörnur í Telegraph.

„Ég hef aldrei séð Albert Hall bregðast svona við,“ segir í dómi gagnrýnanda The Telegraph um tónleika Bjarkar.

„Við sáum Björk vinna sig í gegnum flóknar tilfinningar sem fylgja áföllum í samböndum og fjölskyldum,“ segir í dómi The Times.

Gagnrýnandi Evening Standard sagði að það hefði tekið nokkurn tíma að venja Björk án raftónlistar en tónleikarnir hafi hins vegar reynst dáleiðandi þegar upp var staðið.

Gagnrýnandi The Guardian segir Björk enn halda í metnaðinn og frumleikann sem hefur ávallt einkennt hana sem listamann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.