Enski boltinn

Emre Can bíður eftir tækifærinu

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Emre Can á æfingu Liverpool
Emre Can á æfingu Liverpool vísir/getty
Þjóðverjinn Emre Can á enn eftir að byrja sinn fyrsta leik með Liverpool á leiktíðinni og er hann orðinn leiður á bekkjarsetunni.

„Ég er mjög, mjög lélegur áhorfandi,“ sagði Can við heimasíðu Liverpool. „Auðvitað er ég ánægður þegar liðinu gengur vel en það er allt öðruvísi þegar þú spilar.

„Ég verð að vinna vel. Ég þarf að komast í form. Ef ég fæ tækifærið í leik, sem er allt öðruvísi en á æfingu, þarf að ég vinna af krafti og fá sjálfstraustið aftur,“ sagði Can sem meiddist í upphafi leiktíðar.

„Ég hef ekki leikið margar mínútur á tímabilinu. Ég hef verið óheppinn á tímabilinu vegna þess að ég kom seint til liðsins eftir stutt frí eftir Evrópumeistaramótið.

„Svo þegar ég kom aftur þá meiddist ég. Liðinu gekk vel og þegar ég var leikfær var erfitt að komast í liðið.

„Nú er það mitt að vinna vel og ég hef trú á því að ef ég er í nógu góðu formi þá kemst ég í liðið að lokum,“ sagði Can.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×