Kokkalandsliðið sýnir afrakstur margra mánaða vinnu í dag Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 8. október 2016 12:05 Kokkalandsliðið sem hefur æft fyrir keppnina síðustu 18 mánuði er skipað færustu matreiðslumönnum landsins, 16 talsins.
Kokkalandsliðið, sem hefur æft stíft fyrir Ólympíuleikana í matreiðslu undanfarna mánuði, ætlar að leyfa gestum og gangandi að fylgjast með undirbúningnum í Smáralind í dag. Verk dagsins er afar vandasamt en lögð verður sérstök áhersla á útlit réttanna.Listaverk á matardiskum Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri kokkalandsliðsins, segir undirbúninginn hafa staðið yfir í átján mánuði, en liðið heldur út til Þýskalands á mótið 20. október næstkomandi. „Í dag erum við að sýna aðra keppnisgreinina okkar sem er svokallað kalt sýningarborð eða culinary art á ensku. Það er fjöldi rétta sem eru í raun og veru listaverk á diskum, eða svo ég sletti „extreme“ flott,“ segir Hafliði í samtali við Vísi. Maturinn verður með íslensku yfirbragði, að sögn Hafliða. „Maturinn er borinn fram á til dæmis diskum sem hannaðir eru í kringum réttinn, sem er íslensk smíð og hönnun. Það verður íslenskur steinn, viður, silfur og ýmislegt annað. Þetta er mikið sjónarspil og gríðarlega fallegt.“ Landsliðið þarf að flytja réttina á milli staða og til þess að þeir haldi fullkomnu útliti sínu verða þeir húðaðir með matarlími. Þeir verða því ekki ætir. „Þeir þurfa að standa á borði í heilan dag, í hitanum, og þar með er orðið óhæft að borða þá. En að sjálfsögðu er þetta allt saman alvöru matur sem unnið er með á sérstakan hátt,“ segir Hafliði.Fimm sólarhringa ferli Aðspurður segir hann það taka allt að fimm sólarhringa að útbúa kalda borðið, sem verður til sýnis í Smáralind í dag. „Það eru nokkur handtökin á bak við þetta en þróunin tók eitt og hálft ár.“ Íslenska kokkalandsliðið er með þeim bestu í heimi, eða á sjötta sæti lista yfir bestu kokkalandslið heims. Hafliði segir að mikill spenningur sé fyrir mótinu og hvetur hann alla til þess að fylgjast með liðinu í Smáralind í dag. Ólympíuleikarnir í matreiðslu, IKA Culinary Olympics, er stærsta matreiðslukeppni landsliða í heiminum og jafnframt sú mest krefjandi. Keppnin á sér yfir 100 ára sögu og er haldin á fjögurra ára fresti. Í keppninni mætast margir af færustu kokkum heims frá um 50 löndum. Liðin koma með hluta af hráefni með sér að heiman, auk ýmissa tækja og tóla sem þarf á keppnisstað. Keppt er í tveimur greinum, köldu borði og heitum mat. Það lið sem nær hæstu samanlögðum stigum verður Ólympíumeistari.
Mest lesið Arndís Anna hyggst ekki bjóða sig fram aftur Innlent Meintur nethrellir fær bætur vegna húsleitar Innlent Starfsstjórn með nýjum forsætisráðherra „bara einhver furðukenning“ Innlent Þykir leitt hvernig kennarar túlkuðu orð sín Innlent Mikið undir á fyrsta sáttafundi eftir verkfallsboðun Innlent „Loksins!“ segja ungir sjálfstæðismenn Innlent Íslendingur bannaður á djamminu í Danmörku Innlent Ekki einhugur meðal formanna flokkanna um framhaldið Innlent Dagbjört stendur við færsluna sem hún eyddi Innlent Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn Innlent Fleiri fréttir Mikið undir á fyrsta sáttafundi eftir verkfallsboðun Arndís Anna hyggst ekki bjóða sig fram aftur Meintur nethrellir fær bætur vegna húsleitar „Loksins!“ segja ungir sjálfstæðismenn Starfsstjórn með nýjum forsætisráðherra „bara einhver furðukenning“ Ekki einhugur meðal formanna flokkanna um framhaldið Þykir leitt hvernig kennarar túlkuðu orð sín Sér Sigurð Inga alveg fyrir sér sem forsætisráðherra Dagbjört stendur við færsluna sem hún eyddi Viðbrögð stjórnarandstöðunnar, rödd almennings og landsleikur Afar spenntur fyrir minnihlutastjórn Íslendingur bannaður á djamminu í Danmörku „Ekkert eðlilega leiðinleg, þessi ríkisstjórn“ Allar líkur á samþykki forseta og að stjórnin sitji til kosninga Blönduð leið líkleg hjá Viðreisn og barátta um oddvitasætin „Við erum ekkert ofboðslega hrifin af þessari dramatík“ Staðan óljós eftir atburðarás gærdagsins Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn Hnífstunguárás í gistiskýlinu „Við þurfum að flýta okkur hægt í þessari stöðu“ Það henti VG að vera í „svolitlum slag“ við Sjálfstæðisflokkinn Skondið að sjá ágreininginn koma upp á yfirborðið Stuttur tími til að „komast í kjólinn fyrir jólin“ Pallborðið: Hvað segir stjórnarandstaðan um útspil Bjarna? Óvissa í efnahagslífinu og erfitt að sjá að verðbólga hjaðni nú Annar fyrrverandi Miðflokksmaður til liðs við Arnar Þór Forseti fundar með formönnum Uppstilling á framboðslista „ekki A-kostur“ „Svívirðileg móðgun við kennara“ „Mér gæti ekki verið meira sama um alla spekingana“ Sjá meira