Innlent

Handtekinn á nærbuxunum á Sæbraut

Gissur Sigurðsson skrifar
Maðurinn var á stuttermabol og nærbuxum einum klæða.
Maðurinn var á stuttermabol og nærbuxum einum klæða. Vísir/Pjetur
Lögreglu barst tilkynning á tólfta tímanum í gærkvöldi um að karlmaður væri á gangi á Sæbraut, í stuttermabol og á nærbuxunum einum klæða. Þegar lögregla kom á vettvang reyndist maðurinn ölvaður og ófær um að sjá fótum sínum forráð, þannig að hann var vistaður í fangageymslum þar sem hann sefur vímuna úr sér.

Þá rann æði á gest á hóteli í miðborginni upp úr klukkan fjögur í nótt og kölluðu starfsmenn á lögreglu. Þegar hún kom á vettvang var hann meðal annars búinn að skemma hurðina að herbergi sínu og fleira innanstokks. Hann var handtekinn og færður í fangageymslu.

Ekki kemur fram í skeyti lögreglu hvort þetta var Íslendingur eða erlendur ferðamaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×