Innlent

Kona á Norðurlandi vann 30 milljóna króna íbúð að eigin vali

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ekki fylgir sögunni hvar á Norðurlandi konan býr en myndin er frá Akureyri.
Ekki fylgir sögunni hvar á Norðurlandi konan býr en myndin er frá Akureyri. vísir/pjetur
Rúmlega fertug kona á Norðurlandi vann í dag aðalvinninginn í Happdrætti DAS en vinningurinn var íbúð að eigin vali að verðmæti 30 milljónir króna.

Í tilkynningu frá DAS kemur fram að vinningurinn hafi komið á tvöfaldan miða og því fær konan 30 milljónirnar óskiptar í sinn hlut. Auk þess er vinningurinn skattfrjáls.

Næsti íbúðarvinningur hjá Happdrætti DAS verður dreginn út 29. desember að verðmæti 30 milljónir á tvöfaldan miða og aftur 26. janúar.

Í nóvember verða dregnar út 100 milljónir, í desember 96 milljónir og í janúar 107 milljónir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×