Sænsku stelpunum varð mjög kalt í Kópavogi í gær: Við stóðum bara allar skjálfandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. október 2016 15:00 Lotta Schelin og Marta í leiknum í gær. Vísir/Eyþór
Lotta Schelin tryggði Rosengård 1-0 sigur á Breiðabliki í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fótbolta í gær. Í viðtölum eftir leik lýsti Lotta aðstæðunum í Kópavogi sem þeim verstu sem hún hefur upplifað á ferlinum. Rok og rigning settu sinn svip á leikinn og voru aðstæður í Kópavogi á mörkunum að vera boðlegar fyrir fótboltaleik. Schelin kvartaði líka yfir aðstæðunum í viðtölum eftir leikinn. „Ef ég segi alveg eins og er þá er þetta í fyrsta skiptið þar sem ég gat ekki beðið eftir því að leikurinn kláraðist. Mér hefur aldrei liðið þannig áður,“ sagði Lotta Schelin í viðtali við Sydsvenskan. „Við hugsuðum bara, tökum stigin og drífum okkar síðan heim. Það stóðu bara allar skjálfandi. Þetta var svo sannarlega engin fótboltaveisla," sagði Schelin. Lotta Schelin er markahæsti leikmaður sænska landsliðsins frá upphafi og hefur þrisvar sinnum unnið Meistaradeildina með franska liðinu Lyon þar á meðal í fyrravor. „Ég verð líka að segja að þetta eru verstu aðstæður sem ég hef spilað við á mínum ferli. Einu spiluðum við með landsliðinu í Wales þegar hitastigið var í kringum núll gráðurnar. Þá varð okkur líka mjög kalt," sagði Schelin. Lotta Schelin skoraði eina mark leiksins strax á áttundu mínútu og þar við sat. Seinni leikurinn fer síðan fram á heimavelli Rosengård í næstu viku.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Fleiri fréttir Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Sjá meira