Pólska þingið hafnar lagafrumvarpi um bann við fóstureyðingum Atli Ísleifsson skrifar 6. október 2016 09:39 Svartur mánudagur var haldinn fyrr í vikunni. Vísir/AFP
Pólska þingið hafnaði í morgun með yfirgnæfandi meirihluta lagafrumvarpi sem myndi fela í sér nær algert bann við fóstureyðingum í landinu. BBC greinir frá þessu. Þetta gerist í kjöfar gríðarlega fjölmennra mótmæla í Póllandi, sem og víða um heim, gegn frumvarpinu. Þúsundir andstæðinga lagabreytinganna lögðu niður störf á mánudag til að beita pólskum stjórnvöldum þrýstingi til að hverfa frá hugmyndum sínum. Mótmæladagurinn var nefndur Svartur mánudagur, en í tilefni hans klæddust konur svörtu og flykktust út á götur helstu borga Póllands þúsundum saman, með mótmælaspjöld og hrópuðu vígorð gegn áformum stjórnarinnar. Lög um fóstureyðingar í Póllandi eru nú þegar ein þau ströngustu í Evrópu, en einungis tvö önnur ríki í Evrópu eru með svo stranga fóstureyðingarlöggjöf - Malta og Páfagarður. Samkvæmt frumvarpinu, sem pólska þingið hefur nú hafnað, hefði verið gengið enn lengra og fóstureyðingar bannaðar með öllu nema ef móðirin er í lífshættu. Viðurlög við fóstureyðingum hefðu orðið fimm ára fangelsi, bæði fyrir móðurina og þá sem kunna að framkvæma aðgerðina. Íslenskir þingmenn höfðu einnig þrýst á pólsk stjórnvöld að hverfa frá lagabreytingunum. Þá var haldinn samstöðufundur á Austurvelli. Laga- og réttlætisflokkurinn, sem er fimmtán ára gamall flokkur hægrisinnaðra íhaldsmanna, hefur haldið um stjórnartaumana í Póllandi í tæpt ár, eða frá því hann sigraði með yfirburðum í þingkosningum í október á síðasta ári. Flokkurinn fékk þá 235 þingsæti af 460 og fer því með meirihluta á þingi án þess að þurfa stuðning frá öðrum flokkum. Kaþólska kirkjan í Póllandi hefur eindregið stutt stjórnina í þessum áformum.
Tengdar fréttir Íslenskir þingmenn skora á Pólverja að draga frumvarpið til baka Bréfið er sent að frumkvæði Ástu Guðrúnar Helgadóttir, þingmanns pírata. Þrjátíu íslenskir þingmenn skrifuðu undir. 3. október 2016 17:49 Pólskar konur mótmæltu Áformum pólsku ríkisstjórnarinnar um að banna fóstureyðingar var harðlega mótmælt í gær með kvennaverkfalli og fjöldafundum víða í Evrópu. 4. október 2016 07:00 Stefnir í að pólsk yfirvöld hætti við umdeilda fóstureyðingarlöggjöf Ráðherra í ríkisstjórn Póllands segir að mótmæli kvenna þar í landi hafi kennt ríkisstjórninni lexíu í auðmýkt. 5. október 2016 14:57 Mest lesið Netanyahu heitir hefndum Erlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Erlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna Innlent Mælirinn fullur vegna vanvirðingar á slysstað Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Sjá meira
Íslenskir þingmenn skora á Pólverja að draga frumvarpið til baka Bréfið er sent að frumkvæði Ástu Guðrúnar Helgadóttir, þingmanns pírata. Þrjátíu íslenskir þingmenn skrifuðu undir. 3. október 2016 17:49
Pólskar konur mótmæltu Áformum pólsku ríkisstjórnarinnar um að banna fóstureyðingar var harðlega mótmælt í gær með kvennaverkfalli og fjöldafundum víða í Evrópu. 4. október 2016 07:00
Stefnir í að pólsk yfirvöld hætti við umdeilda fóstureyðingarlöggjöf Ráðherra í ríkisstjórn Póllands segir að mótmæli kvenna þar í landi hafi kennt ríkisstjórninni lexíu í auðmýkt. 5. október 2016 14:57