Innlent

Tveir fluttir á slysadeild eftir umferðarslys við Fífuna

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá slysstað við Fífuna í kvöld.
Frá slysstað við Fífuna í kvöld. mynd/aðsend
Tveir bílar skullu saman við Fífuna í Kópavogi á áttunda tímanum í kvöld. Tilkynning um slysið barst slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu klukkan 19:50.

Alls voru þrír einstaklingar í bílunum en tveir voru fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsl samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. Sjúkrabíll fór á vettvang ásamt dælubíl sem vann við hreinsun á slysstað.

Tveir voru fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsl.mynd/aðsend
Dælubíll var sendur á staðinn til að hreinsa vettvang.mynd/aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×