West Ham fer illa með kvennaliðið sitt Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. október 2016 16:45 Kvennalið West Ham fær vonandi nýja búninga fljótlega. vísir/getty
Búið er að klaga West Ham til enska knattspyrnusambandsins fyrir meðferð sína á kvennaliði félagsins. Það er stjórnarformaður kvennaliðsins sem gerði það. Sá heitir Stephen Hunt og hann er búinn að fá nóg af meðferðinni sem kvennaliðið fær hjá eigendum félagsins. Eftir margra mánaða deilur hefur hann ákveðið að kvarta til knattspyrnuyfirvalda. „Það þarf að sekta West Ham þar til félagið fer að haga sér eins og nútímafélag,“ sagði Hunt reiður en West Ham segir á móti að Hunt hafi hótað félaginu og neitað að vinna með þeim. Forráðamenn Hamranna segjast styðja jafnrétti en samstarfið við Hunt hafi ekki gengið upp. Því ætli félagið að taka yfir reksturinn á liðinu. Það virðist vera verk að vinna hjá West Ham miðað við þær athugasemdir sem hafa komið frá Hunt. Hunt segir að West Ham hafi bannað kvennaliðinu að finna sinn eigin styrktaraðila og að liðið hafi litla peninga á milli handanna þar sem stelpurnar hafi þurft að kaupa búningana sína sjálfar. Hunt segir að West Ham hafi lofað að senda ávísun fyrir útlögðum kostnaði en ekkert hafi bólað á þeim peningum. Þess utan svari félagið ekki skilaboðum frá honum. Svo þarf liðið að æfa við þjóðveg þar sem félagð hleypir stelpunum ekki inn í æfingasal félagsins. Liðið hefur ekki efni á sjúkraþjálfara né rútu til þess að keyra liðið í leiki. Búningarnir eru þeir sömu og á síðustu leiktíð. Krotað var yfir nöfn leikmanna á þeim treyjum þar sem nýr leikmaður var kominn í treyju leikmanns frá í fyrra. Allt mjög fagmannlegt. „West Ham hefur brotið reglur enska knattspyrnusambandsins um jafnrétti kynjanna í boltanum. Í fyrstu hélt ég að þetta væri skortur á áhuga en nú hef ég áttað mig á að þarna er hreinn og beinn brotavilji af hálfu félagsins. Þessi meðferð er löngu hætt að vera fyndin,“ sagði Hunt reiður.
Enski boltinn Mest lesið Haaland að verða pabbi Fótbolti Berglindi sagt upp í síma: „Kom mér mjög á óvart“ Íslenski boltinn Lærisveinar Heimis með sinn fyrsta sigur Fótbolti „Naut þessa leiks í botn“ Körfubolti „Ég vil fá þessa íslensku geðveiki sem landsliðin okkar nota“ Sport „Verðum að gera betur og halda haus, þetta var ennþá okkar leikur“ Körfubolti Miami Heat nefna völlinn eftir Pat Riley Körfubolti Ómar Ingi og Gísli Þorgeir markahæstir í tapi Handbolti „Erfitt að segja að við höfum unnið á einhverju ákveðnu“ Körfubolti Toppliðið tapaði og Afturelding fór á toppinn Handbolti Fleiri fréttir Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjá meira