Mourinho: Besta frammistaða tímabilsins hjá mínum mönnum Kristinn Páll Teitsson skrifar 2. október 2016 13:30 Mourinho gekk súr af velli með aðeins eitt stig í farteskinu. Vísir/getty „
Þetta var besta frammistaða okkar á tímabilinu. Við fengum færin til að skora 3-4 mörk í fyrri hálfleik og alls sex mörk í leiknum en nýttum ekki færin,“ sagði Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, svekktur að leikslokum eftir 1-1 jafntefli gegn Stoke í hádegisleiknum í enska boltanum. Heimamenn fengu fjöldan allra færa til að gera út um leikinn en Joe Allen náði að jafna metin fyrir Stoke skömmu fyrir leikslok. „Spilamennskan í dag var mun betri en gegn Leicester og í raun lang besta frammistaðan okkar í langan tíma. Við erum með lið sem vill skora mörk og stýra leikjum og við fengum hátt í átta færi til að klára leikinn.“Sjá einnig:Stoke krækti í stig á Old Trafford Mourinho hrósaði Lee Grant, markverði Stoke í dag, í hástert eftir leikinn. „Strax á fyrstu mínútu bjargar hann þeim með frábærri markvörslu þegar hann varði frá Zlatan. Svo ver hann frábærlega allan leikinn og aftur frá Zlatan á lokasekúndunum. Það er hægt að segja ýmislegt um jafnteflið en að mínu mati bjargaði hann stigi fyrir Stoke,“ sagði Mourinho og hélt áfram: „Stoke barðist af krafti eins og þeir gera í öllum leikjum. Þeir komu hingað til að sækja eitt stig og voru heppnir að ná því í dag. Heppni er hluti af fótboltanum og þeir eru ekki sökudólgarnir fyrir því að við tökum ekki þrjú stig í dag.“
Enski boltinn Mest lesið Haaland að verða pabbi Fótbolti Berglindi sagt upp í síma: „Kom mér mjög á óvart“ Íslenski boltinn Lærisveinar Heimis með sinn fyrsta sigur Fótbolti „Naut þessa leiks í botn“ Körfubolti „Ég vil fá þessa íslensku geðveiki sem landsliðin okkar nota“ Sport „Verðum að gera betur og halda haus, þetta var ennþá okkar leikur“ Körfubolti Miami Heat nefna völlinn eftir Pat Riley Körfubolti Ómar Ingi og Gísli Þorgeir markahæstir í tapi Handbolti „Erfitt að segja að við höfum unnið á einhverju ákveðnu“ Körfubolti Toppliðið tapaði og Afturelding fór á toppinn Handbolti Fleiri fréttir Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjá meira