Enski boltinn

Chelsea og Liverpool unnu | Sjáðu öll mörk gærdagsins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Chelsea og Liverpool unnu bæði leiki sína í ensku úrvalsdeildinni í gær en þá fóru fimm leikir fram.

Swansea komst yfir gegn Liverpool með marki eftir hornspyrnu Gylfa Þórs Sigurðssonar en Liverpool náði að snúa leiknum sér í vil með mörkum þeirra Roberto Firmino og James Milner.

Sjá einnig: Upphitun: Frábær sunnudagur í vændum

Hull náði að standa í Chelsea í fyrri hálfleik en þá tóku þeir bláu yfir og tryggðu sér sigur með frábærum mörkum þeirra Willian og Diego Costa.

Öllum hinum þremur leikjunum lauk með jafntefli en West Ham og Sunderland eru enn í fallsæti þrátt fyrir að hafa náð í stig.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×