Enski boltinn

Þrír stuðningsmenn West Ham handteknir eftir leik gærdagsins

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Það gengur lítið sem ekkert hjá West Ham þessa dagan
Það gengur lítið sem ekkert hjá West Ham þessa dagan Vísir/getty
Þrír stuðningsmenn West Ham voru handteknir eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Scotland Yard staðfesti þetta við BBC í gær en tveir voru handteknir vegna hópslagsmála á meðan einn var handtekinn fyrir árás á lögregluþjón.

Sjá einnig:West Ham enn í fallsæti | Úrslit dagsins

Er þetta ekki í fyrsta skiptið sem vandræði eru á stuðningsmönnum West Ham á nýja leikvanginum en stuðningsmenn Middlesbrough fengu lögreglufylgd af vellinum í gær.

Lauk leiknum með 1-1 jafntefli en West Ham í fallsæti að sjö umferðum loknum og hefur aðeins fengið fjögur stig á heimavelli í fjórum leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×