Óveðrið nær hámarki í kvöld Anton Egilsson skrifar 19. október 2016 21:25 Það fer að hvessa enn meira á höfuðborgarsvæðinu í kvöld. Vísir/Vilhelm
Samkvæmt veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands nær óveðrið hámarki í kvöld. Búist er við enn hvassara veðri á höfuðborgarsvæðinu þegar líða tekur á kvöldið. Klukkan átta í kvöld var suðaustan átt, 10 til 15 metrar á sekúndu, en þétt byggð og hár gróður hlífir höfuðborginni meðan vindurinn blæs í suðaustan átt. Vindurinn verður suðlægari seinna í kvöld og þá kemur vindurinn til með að ná sér betur á strik. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hvetur því fólk og fyrirtæki að huga að lausamunum og tryggja byggingasvæði og báta. Hvassast verður að öllum líkindum á norðanverðu Snæfellsnesi en klukkan átta í kvöld var vindhraði í kringum 20 metrar á sekúndu. Kemur vindur til með að aukast seinna í kvöld og getur náð upp í allt að 28 metra á sekúndu. Reiknað er með að það muni fara að draga úr vindi laust eftir miðnætti.Horfur næsta sólarhring Suðaustan 18-28 m/s á sunnan- og vestanverðu landinu og víða snarpar vindvhiður við fjöll. Vaxandi sunnanátt norðantil, 18-25 m/s þar í kvöld. Talsverð rigning, en mun hægari vindur og þurrt austanlands. Sunnan 20-30 m/s í nótt, hvassast til fjalla en sunnan 15-20 á Austurlandi. Dregur úr vindi vestantil seint í nótt en austantil í fyrramálið. Áfram rigning með köflum eða skúrir á morgun en skýjað með köflum norðaustan- og austanlands. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast á Norðurlandi. Efra kortið sýnir bæði rigningu og vind en neðra kortið sýnir einungis vind.
Mest lesið Bein útsending: Formenn flokka funda með forseta Íslands Innlent Segja ásakanir „uppspuna frá rótum“ og „efni í hryllingsmynd“ Innlent „Þetta verður alger Kleppur“ Innlent „Þriðja banatilræðinu“ gegn Trump afstýrt Erlent Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn Innlent Segir Svandísi aðeins eiga einn kost eftir „svipugöng niðurlægingar“ Innlent Pallborðið: Hvað segir stjórnarandstaðan um útspil Bjarna? Innlent „Mér gæti ekki verið meira sama um alla spekingana“ Innlent Annar fyrrverandi Miðflokksmaður til liðs við Arnar Þór Innlent „Svívirðileg móðgun við kennara“ Innlent Fleiri fréttir Allar líkur á samþykki Höllu og að stjórnin sitji til kosninga Blönduð leið líkleg hjá Viðreisn og barátta um oddvitasætin „Við erum ekkert ofboðslega hrifin af þessari dramatík“ Staðan óljós eftir atburðarás gærdagsins Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn Hnífstunguárás í gistiskýlinu „Við þurfum að flýta okkur hægt í þessari stöðu“ Það henti VG að vera í „svolitlum slag“ við Sjálfstæðisflokkinn Skondið að sjá ágreininginn koma upp á yfirborðið Stuttur tími til að „komast í kjólinn fyrir jólin“ Pallborðið: Hvað segir stjórnarandstaðan um útspil Bjarna? Óvissa í efnahagslífinu og erfitt að sjá að verðbólga hjaðni nú Annar fyrrverandi Miðflokksmaður til liðs við Arnar Þór Forseti fundar með formönnum Uppstilling á framboðslista „ekki A-kostur“ „Svívirðileg móðgun við kennara“ „Mér gæti ekki verið meira sama um alla spekingana“ Frank Walter Sands er fallinn frá „Þetta verður alger Kleppur“ Gerir grein fyrir ákvörðun sinni síðar í vikunni Segja ásakanir „uppspuna frá rótum“ og „efni í hryllingsmynd“ Óvenjulegt ef forseti féllist ekki á ósk um þingrof Segir Svandísi aðeins eiga einn kost eftir „svipugöng niðurlægingar“ Bein útsending: Formenn flokka funda með forseta Íslands Líkamsárás með hníf og ölvaðir unglingar Hætt að hugsa um það sem liðið er og horfa fram á við „Ennþá í töluverðu óvissuástandi um framvinduna“ Rollubingó og hrútasýning á Flúðum Svandís safnar sjálfboðaliðum: „Ég bið ykkur um aðstoð” Má gera ráð fyrir að Halla ræði við formenn allra flokka Sjá meira