Innlent

Fara aftur til ofbeldismannsins vegna húsnæðisskorts

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Algengt er að konur dvelji mánuðum saman í Kvennaathvarfinu vegna skorts á leiguhúsnæði. Framkvæmdastýra athvarfsins segir nær ómögulegt fyrir konurnar að verða sér úti um húsnæði, og að margar þeirra hafi því engan annan kost en að snúa aftur til ofbeldismannsins.

Undanfarin misseri hefur mikið hefur verið rætt um húsnæðisskort í Reykjavík og þá sérstaklega erfiða stöðu leigjenda með hækkandi húsnæðisverði og auknum ferðamannastraumi. Ljóst er að húsnæðisvandinn kemur mest niður á þeim sem minna mega sín. Skjólstæðingar Kvennaathvafsins eru margar í þeim hópi, en þær eru flestar veikar fyrir bæði fjárhags- og félagslega. 

Fá ekki einu sinni að skoða íbúðir

„Húsnæðismarkaðurinn er eins og allir vita alltaf að verða harðari og harðari, og það kemur mjög illa niður á okkar konum. Við sjáum að það hefur versnað mjög mikið undanfarna mánuði og ár að markaðurinn er alltaf að verða þeim erfiðari og erfiðari,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.

Konurnar eru margar af erlendu bergi brotnar og geta því ekki leitað til vina og ættingja hér á landi. 

„Leiga er að hækka svo mikið þannig að oft er þetta bara ógerlegt fyrir þær. En við sjáum það bara ennþá meira á því hvað þær eiga litla möguleika á íbúðum. Þær sækja um og sækja um en eru ekki einu sinni boðaðar til að fá að skoða.“

Meðaldvöl í athvarfinu aldrei verið lengri



Sifellt algengara er að konurnar dvelji í athvarfinu svo mánuðum skipti þar sem þær hafa ekki aðra valkosti.

„Meðaldvöl hefur verið að lengjast. Það sem af er ári núna hafa að meðaltali sextán íbúar dvalið í húsinu á hverjum einasta degi. Við þurfum að leita 20- 30 ár aftur í tímann til að sjá þess háttar nýtingu á húsinu,“ segir Sigþrúður.

Fara aftur til ofbeldismannsins vegna húsnæðisleysis

Hún bendir á að fyrir nokkrum árum hafi flestar konurnar í athvarfinu farið beint þaðan í nýtt húsnæði, en á síðasta ári hafi aðeins tólf prósent gert það. Konurnar upplifi því í auknum mæli að það sé þeirra eini valkostur að fara aftur til ofbeldismannsins. 

„Í sumum tilfellum sjá konurnar í rauninni ekki annan kost en þann að fara aftur heim. Það myndi skipta okkar konur alveg ofboðslega miklu máli að geta farið í öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði fyrsta árið eftir að dvöl í neyðarathvarfinu líkur,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×