Innlent

Spotify lá niðri í kvöld

Birgir Olgeirsson skrifar
Daniel Ek, framkvæmdastjóri Spotify.
Daniel Ek, framkvæmdastjóri Spotify. Vísir/AFP
Netþjónar tónlistarveitunnar Spotify lágu niðri nú í kvöld á nokkrum stöðum í Bandaríkjunum og Evrópu, og þá að sjálfsögðu hjá einhverjum notendum á Íslandi.

Þetta átti sér stað á níunda tímanum í kvöld og kom eflaust illa við suma, þar á meðal þá sem treysta á Spotify-listana sína til að keyra föstudagskvöldin í gang eða að spila létta stemningstónlist yfir kvöldverðarboðinu.

Eftir því sem næst verður komist þá hefur tónlistarveitan náð að lagfæra þennan vanda. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×