Innlent

Íslendingur vann tæplega 13,7 milljónir í EuroJackpot

Birgir Olgeirsson skrifar
vísir/vilhelm
Þjóðverji var einn með allar aðaltölurnar og báðar stjörnutölurnar réttar í EuroJackpot- útdrætti vikunnar og fær hann í sinn hlut rúmlega 11 milljarða króna. Átta voru með annan vinning og fær hver þeirra rúmlega 349 milljónir í vinning. Fimm miðanna voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Finnlandi og einn í Hollandi.

Íslendingur, sem keypti sér miða á lotto.is, var einn af 11 spilurum sem hrepptu 3. vinning og fær hver rétt tæpar 13,7 milljónir.

Annar Íslendingur sem líka keypti miða á netinu, vann 411.270 kr.

Tveir voru með fjórar réttar tölur í Jókernum og fá þeir 100 þúsund kr. í vinning.

Miðarnir voru keyptir í Doddagrilli í Garði og N1, Stórahjalla 2 í Kópavogi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×