Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2: Hannes og Smári segja faglega staðið að vændisviðskiptum á Íslandi

Sindri Sindrason skrifar
Kvennagullin og rokkstjörnurnar Hannes og Smári, önnur sjálf leikkvennana Halldóru Geirharðsdóttur og Ólafíu Hrannar Jónsdóttur, hittu Sindra Sindrason í Borgarleikhúsinu á dögunum.

Hannesi og Smára er fátt óviðkomandi,en þeir ræða meðal annars um hversu faglega hefur verið staðið að öllum vændisviðskiptum þeirra og hve mikilvægt sé fyrir karlmenn að standa keikir gegn því sem þeir lýsa sem árásum á karlmennskuna.

Það er nefnilega ýmislegt, sem gæti verið betra að þeirra mati og fannst strákunum þannig að sér vegið að þeir tóku upp lag og myndband um efnið, sem hægt er að sjá í fréttinni.

Ekki missa af Hannesi og Smára í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld, sem hefjast á slaginu 18.30, að vanda.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×