Innlent

Sat fastur í logandi bíl

Maðurinn var klipptur út úr bílnum af slökkviliði.
Maðurinn var klipptur út úr bílnum af slökkviliði. Vísir/Ernir
Ökumaður slasaðist þegar hann missti stjórn á bíl sínum á Hringbraut á móts við Þjóðminjasafnið laust fyrir klukkan þrjú í nótt, og hafnaði á steinvegg. Ökumaður , sem var einn í bílnum, sat fastur í bílflakinu og kviknaði eldur út frá vélinni, en snarráðir vegfarendur náðu að slökkva hann áður en ökumanninn sakaði.

Slökkviliðið kom svo á vettvang og beitti klippum til að ná honum úr flakinu og var hann fluttur í sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×