Innlent

Ríkisendurskoðun telur margt ábótavant við ráðningu nýs orkubússtjóra

Birgir Olgeirsson skrifar
Orkubú Vestfjarða.
Orkubú Vestfjarða. Vísir/Pjetur
Ríkisendurskoðun gerir athugasemdir við starfshætti stjórnar Orkubús Vestfjarða við ráðningu á nýjum orkubússtjóra síðastliðið vor. Telur Ríkisendurskoðun telur starfsháttum stjórnarinnar um margt ábótavant og bendir Ríkisendurskoðunin á mikilvægi þess að stjórn Orkubús Vestfjarða fylgi þeim lögum og reglum sem gilda um félagið.

„Stjórn og stjórnendur Orkubúsins eru hvattir til að efla traust og trúverðugleika á félaginu sem stefnt var í hættu með því verklagi sem var viðhaft í ráðningarferlinu og með því að fylgja ekki lögum um félagið þegar samþykktum þess var breytt árið 2014 til að fækka varamönnum í stjórn. Þá er fjármála- og efnahagsráðuneyti hvatt til þess að koma samskiptum sínum við stjórn Orkubús Vestfjarða í formlegri farveg,“ segir í athugasemdum Ríkisendurskoðunar við þessa starfshætti stjórnar Orkubúsins.

Í þessari stjórnsýsluúttekt gerir Ríkisendurskoðun ekki athugasemd við launað námsleyfi fyrrverandi orkubússtjóra en telur eðlilegt að um slík leyfi verði settar fastmótaðar reglur, meðal annars um lengd launaðra námsleyfa.

Sjá einnig: Leyndardómsfullt háskólanám orkubússtjóra

Eins telur stofnunin ekki á verksviði sínu að meta hvort hæfasti umsækjandinn var valinn þegar nýr orkubússtjóri var valinn.

„Stofnunin finnur hins vegar að því að stjórn Orkubús Vestfjarða hafi hvorki virt eigin áætlun um ráðningarferli nýs orkubússtjóra né eigin starfsreglur um undirbúning og ákvarðanatöku. Endanleg ákvörðun um ráðningu hafi ekki verið á dagskrá þess fundar þegar ákvörðun var tekin og almennt hafi fundarmönnum ekki gefist færi á að kynna sér til hlítar þau málsgögn sem lágu fyrir. Eins hafi láðst að skrá eða halda utan um upplýsingar og gögn sem varða ákvarðanatöku stjórnar. Loks fari ákvörðun formanns stjórnar um að hafna kröfu annars stjórnarmanns um bókun í bága við starfs­regl­ur stjórnar og ákvæði hluta­félagalaga,“ segir í stjórnsýsluúttektinni.

Þar kemur einnig fram að Ríkisendurskoðun fái ekki skilið hvernig það gat gerst að stjórn Orkubúsins hvatti til þess, með vitund og aðkomu fjármála- og efnahagsráðuneytisins, að samþykktum félagsins yrði breytt á þann veg að aðeins einn varamaður yrði skipaður í stjórn Orkubúsins í stað fimm eins og lög um félagið kveða skýrt um. Hefur þessi breyting verði þegar tekin til baka.

„Af gögnum málsins má ráða að stjórn Orkubúsins hafi fallist á það að ýmis mis­tök hafi átt sér stað í ráðningarferlinu og að starfshættir verði í framhaldinu teknir til skoð­unar.“

Orkubú Vestfjarða hefur sent frá sér tilkynningu vegna málsins sem lesa má hér fyrir neðan:


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×