Innlent

Minniháttar meiðsl eftir að fólksbíll og traktor skullu saman

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Betur fór en á horfðist þegar bíll og traktor skullu saman á Suðurlandsvegi við Hvítanes.
Betur fór en á horfðist þegar bíll og traktor skullu saman á Suðurlandsvegi við Hvítanes. Vísir/Egill
Betur fór en á horfðist þegar bíll og traktor skullu saman á Suðurlandsvegi við Hvítanes með þeim afleiðingum að traktorinn hvolfdi.

Lögreglunni barst tilkynning um slysið rétt fyrir klukkan tvö í dag. Erlendir einstaklingar voru á fólksbílnum og urðu minniháttar meiðsl á fólki, en töluverðar skemmdir urðu á bílnum.

„Þetta fór bara eins vel og hægt var, fyrst þetta fór svona,“ segir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×