Innlent

HeForShe berst gegn netníði: Konur á aldrinum 18-24 ára líklegastar til að verða fyrir netníði

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
UN Women á Íslandi hleypir í dag af stokkunum nýrri HeForShe herferð. Markmið herferðarinnar er að að uppræta netníð.
UN Women á Íslandi hleypir í dag af stokkunum nýrri HeForShe herferð. Markmið herferðarinnar er að að uppræta netníð. Vísir/Skjáskot
UN Women á Íslandi hleypir í dag af stokkunum nýrri HeForShe herferð. Markmið herferðarinnar er að hvetja fólk til þess að skrá sig á heforshe.is og skuldbinda sig þar með til að berjast gegn netníð sem og að tileinka sér ábyrga nethegðun, beita hvorki hatursfullri orðræðu né hóta ofbeldi á netinu.

Netníð er meðal annars haturosorðræða, hacking, auðkennisþjófnaður, áreiti, og hótanir. Þá er Internetið einnig notað til mansals og kynferðisofbeldis, til að mynda þegar kynferðislegu myndefni er dreift án leyfis. Algengt er að samfélagsmiðlar, og aðrir miðlar sem notaðir eru til netníðs, fríi sig ábyrgð á einhvern hátt.

Árið 1995 höfðu aðeins eitt prósent jarðarbúa aðgang að Internetinu. Sú tala er nú um 40 prósent og yfir þrír milljarðar nota netið á hverjum degi. Konur eru 25 prósent ólíklegri til að hafa aðgang á netinu, en eru þó töluvert líklegri til að verða fyrir netníð.

Netníð gegn konum og stúlkum er vaxandi vandamál. Samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2015 er algengara að konur verði fyrir netníð og eru konur á aldrinum 18-24 ára eru sérstaklega líklegar til að verða fyrir netníð. Til að mynda er talið að um 18% kvenna í Evrópusambandslöndum hafi orðið fyrir einhverskonar netníð frá 15 ára aldri, sem eru um það bil 9 milljónir kvenna.

Kött Grá Pjé tók saman hatursummæli á netinu og gerði úr þeim ljóð.Vísir/Anton Brink
Burðarefni herferðar UN Women er myndband sem sýnir hvernig kynbundið ofbeldi í garð kvenna og stúlkna viðgengst á internetinu. Tónlistarmaðurinn og skáldið Kött Grá Pjé safnaði saman grófum athugasemdum ungs fólks. Athugasemdirnar koma aðallega frá Kiwi (ASKFM), Instagram og Youtube.

„Athugasemdirnar sem blöstu við honum eru grófar og sýna vel það grimma og dulda kynbundna ofbeldi sem fram fer á netinu. Myndbandið varpar ljósi á það rof sem myndast milli samskipta fólks í raunheimum og á Internetinu, líkt og að aðrar samskiptareglur og „netikettur“ viðgangist á netinu,” segir í tilkynningu frá UN Women.

Oft er það svo að notendur virðist ekki tengja á milli þess að efni sem sett er á netið verður þar að eilífu, að netið sé raunverulegur heimur sem lúti sömu samskiptalögumálum og raunveruleikinn utan netsins. Því leyfir fólk sér oft að nota hatursfull ummæli, dónaskap og ofbeldi á netinu, sem það myndi alla jafna ekki láta falla í hversdagslegum aðstæðum í raunheimum.

Þeirri orðræðu sem sýnd er í myndbandinu er ætlað að ögra og hreyfa við fólki. Öll þau ummæli sem fram koma í myndbandinu eru nú þegar á netinu og öllum aðgengileg. Markmið átaksins er stinga á kýlið, það er ekki gert ef farið er eins og köttur í kringum heitan grautinn.

Un Women á Íslandi hvetja alla til að beita sér gegn netníð gegn konum og stelpum, tileinka sér skynsamlegt netsiðferði og skrá sig á www.heforshe.is

Myndband HeForShe má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×