Pundið léttist einnig í fiskiskammti Breta Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 10. október 2016 07:00 Fish and Chips staðir eru hvattir til að minnka skammtastærðir til að berjast gegn offitu. Vísir/Getty
Samfélag Bretar ætla skera upp herör gegn offitu þjóðarinnar og hafa hvatt veitingastaði til að minnka skammtana af hinum eina sanna Fish and Chips. Í fyrra hvöttu bresk stjórnvöld veitingastaði meðal annars til að fela saltstaukana og nú verður hægt að fá minni skammta af þessum einfalda en eftirsótta rétti. Þá verður hægt að fá salat og steikingarolíunni verður breytt. Meðalstærð á skammti er um 450 grömm en áætlanir gera ráð fyrir að skammturinn fari í 283 grömm. Mun verðið vera í kringum pundið eða 140 krónur. Íslendingar selja gríðarlega mikinn fisk til Englands þar sem hann er undirstaðan í þessum eftirlætisskyndibita Breta. Karen Kjartansdóttir, hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, segir að vel matreiddur fiskur sé hitaeiningasnauð og holl matvara.Karen Kjartansdóttir„Við getum vel tekið undir mikilvægi þess að minnka skammtastærðir til að draga úr sóun enda talsmenn ábyrgrar nýtingar á auðlindum. Að leifa mat þykir ekki góður siður enda er með því verið að sóa fjármunum og auðlindum jarðar,“ segir Karen. Hins vegar kveðst Karen viðurkenna að hún telji nokkurt óráð að draga úr fiskneyslu til að bæta heilsufar fólks, ekki síst þegar rætt sé um okkar „villta og heilnæma“ fisk úr Atlantshafinu. „Mínar ráðleggingar í þessum málum eru því frekar þær að minnka skammtinn af frönskunum auk þess sem ég tek undir tillögur um að bæta matreiðsluaðferðir og nota betri olíu við steikingu,“ segir hún. Karen bætir því við að þegar kemur að mat séu Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi talsmenn gæða fremur en magns. „Vitanlega finna útflytjendur fyrir því að pundið hefur fallið, sem er bagalegt fyrir íslenskan efnahag. Í raun sjáum við bara tækifæri í aukinni áherslu á heilsu og hollustu í Bretlandi enda fiskur mikil hollustuvara,“ segir Karen. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Mest lesið Netanyahu heitir hefndum Erlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Erlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna Innlent Mælirinn fullur vegna vanvirðingar á slysstað Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Sjá meira