Ríkið dæmt í annað sinn á árinu til þess að greiða Björgvini bætur Þorgeir Helgason skrifar 10. október 2016 07:00 Björgvin Mýrdal Þóroddsson. Mynd/Björgvin Mýrdal
Íslenska ríkinu hefur verið gert að greiða Björgvini Mýrdal 120 þúsund krónur í miskabætur fyrir líkamsleit sem gerð var á honum. Málavextir eru þeir að Björgvin var gestur á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í fyrra þegar lögreglumenn höfðu afskipti af honum og kröfðust þess að fá að leita á honum. Í dóminum segir að fíkniefnahundur hafi gefið í skyn að Björgvin væri með fíkniefni á sér. Björgvin neitaði að heimila líkamsleit vegna þess að hann taldi hvorki vera til staðar lagaskilyrði til handtöku né líkamsleitar. Var hann þá handtekinn fyrir framan fjölda manns og leitað á honum. Ekkert saknæmt fannst og var Björgvini sleppt að leit lokinni. Björgvin þvertekur fyrir það að hundurinn hafi merkt sig og segir lögregluna hafa beitt því fyrir sig til að réttlæta aðgerðirnar. Þá er gerð athugasemd í dómnum við að nafn félagsskaparins Snarrótarinnar hafi verið skrifað í sviga á eftir nafni Björgvins. Snarrótin berst meðal annars gegn bannhyggju í fíkniefnamálum og gegnir Björgvin stöðu ritara í stjórn félagsins. Dómurinn telur engin málefnaleg sjónarmið að baki slíkri skráningu af hálfu lögreglu og sjálfur telur Björgvin að með því að setja nafn Snarrótarinnar í skýrsluna hafi lögregla verið að skrá stjórnmálaskoðanir hans. „Ég er ánægður með að hafa unnið málið en mér finnast þessi vinnubrögð hjá lögreglunni vera með ólíkindum. Vonandi verður þessi dómur til þess að verklag hjá lögreglunni verði skoðað,“ segir Björgvin. Þetta eru ekki einu bæturnar sem Björgvin Mýrdal Þóroddsson fær frá ríkinu á þessu ári. Í apríl síðastliðnum var íslenska ríkið dæmt til að greiða honum 600 þúsund krónur í miskabætur vegna símhlerunar. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Mest lesið Arndís Anna hyggst ekki bjóða sig fram aftur Innlent Meintur nethrellir fær bætur vegna húsleitar Innlent Starfsstjórn með nýjum forsætisráðherra „bara einhver furðukenning“ Innlent Þykir leitt hvernig kennarar túlkuðu orð sín Innlent Mikið undir á fyrsta sáttafundi eftir verkfallsboðun Innlent „Loksins!“ segja ungir sjálfstæðismenn Innlent Íslendingur bannaður á djamminu í Danmörku Innlent Ekki einhugur meðal formanna flokkanna um framhaldið Innlent Dagbjört stendur við færsluna sem hún eyddi Innlent Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn Innlent Fleiri fréttir Mikið undir á fyrsta sáttafundi eftir verkfallsboðun Arndís Anna hyggst ekki bjóða sig fram aftur Meintur nethrellir fær bætur vegna húsleitar „Loksins!“ segja ungir sjálfstæðismenn Starfsstjórn með nýjum forsætisráðherra „bara einhver furðukenning“ Ekki einhugur meðal formanna flokkanna um framhaldið Þykir leitt hvernig kennarar túlkuðu orð sín Sér Sigurð Inga alveg fyrir sér sem forsætisráðherra Dagbjört stendur við færsluna sem hún eyddi Viðbrögð stjórnarandstöðunnar, rödd almennings og landsleikur Afar spenntur fyrir minnihlutastjórn Íslendingur bannaður á djamminu í Danmörku „Ekkert eðlilega leiðinleg, þessi ríkisstjórn“ Allar líkur á samþykki forseta og að stjórnin sitji til kosninga Blönduð leið líkleg hjá Viðreisn og barátta um oddvitasætin „Við erum ekkert ofboðslega hrifin af þessari dramatík“ Staðan óljós eftir atburðarás gærdagsins Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn Hnífstunguárás í gistiskýlinu „Við þurfum að flýta okkur hægt í þessari stöðu“ Það henti VG að vera í „svolitlum slag“ við Sjálfstæðisflokkinn Skondið að sjá ágreininginn koma upp á yfirborðið Stuttur tími til að „komast í kjólinn fyrir jólin“ Pallborðið: Hvað segir stjórnarandstaðan um útspil Bjarna? Óvissa í efnahagslífinu og erfitt að sjá að verðbólga hjaðni nú Annar fyrrverandi Miðflokksmaður til liðs við Arnar Þór Forseti fundar með formönnum Uppstilling á framboðslista „ekki A-kostur“ „Svívirðileg móðgun við kennara“ „Mér gæti ekki verið meira sama um alla spekingana“ Sjá meira