Enski boltinn

Upphitun fyrir leiki dagsins | Hvað gerir Chelsea gegn Southampton?

Tveir leikir eru á dagskrá enska boltans í dag, en Chelsea heimsækir Southampton í síðari leik dagsins. Í hinum leiknum mætast Everton og West Ham.

Everton fær West Ham í heimsókn, en West Ham vann dramatískan sigur á Sunderland í síðustu umferð áður en stuðningsmenn liðsins gengu berserksgang í sigri gegn chelsea í bikarnum í vikunni.

West Ham hefur gengið afar illa með Everton, en þeir hafa ekki unnið þá í deildarleik síðan 1973 og það er spurning hvað gerist á Goodison Park í dag.

Chelsea spilaði frábærlega í síðasta leik, en þeir unnu stórsigur á Manchester United. Þeir heimsækja Southampton sem hefur spilað vel á tímabilinu og eru í áttunda sætinu.

Upphitun fyrir leikina í dag má sjá í sjónvarpsglugganum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×