Enski boltinn

Heaton lokaði á United | Mourinho rekinn upp í stúku | Sjáðu tilþrif Heaton

Manchester United gerði markalaust jafntefli við Burnley á heimavelli í dag, en heimamenn óðu í færum.

Tom Heaton, markvörður Burnley, mun líklega seint gleyma þessum leik því hann algjörlega lokaði markinu og leikmönnum United var fyrirmunað að skora.

Jose Mourinho, stjóra Manchester United, var vikið upp í stúku í hálfleik af dómara leiksins, Mark Clattenburg, en hann vildi fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik.

United voru svo einum færri frá 68. mínútu þegar Ander Herrera fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.

United er í áttunda sætinu með fimmtán stig, en Burnley er í því þrettánda með ellefu stig.

Jóhann Berg Guðmundsson var skipt af velli á 85. mínútu, en hann átti góðan leik í liði Burnley. Hann var afar duglegur í liði Burnley.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×