Á fjórða tug ábendinga um vændi á Íslandi Nadine Guðrún Yaghi skrifar 20. október 2016 20:00
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist á fjórða tug ábendinga um vændisstarfsemi á árinu. Mikil aukning hefur orðið í framboði vændis í Reykjavík og sést það meðal annars á mikilli virkni á auglýsingasíðum á netinu. Ábendingarnar hafa borist lögreglu með formlegum og óformlegum hætti en stór hluti þeirra berst í gegnum Facebook síðu lögreglunnar. Þegar slíkar tilkynningar berast skoðar lögreglan alltaf hvort um mansal geti verið að ræða. Sérstakt mansalsteymi lögreglunnar var sett á fót í apríl sem fylgist grannt með vændismarkaðnum hér á landi. „Við erum að sjá í dag aukningu á auglýsingum á vændi og sérstaklega í gegnum alþjóðlegar vefsíður. Það hefur orðið gríðarleg aukning núna síðastliðið ár og það er staðreynd,“ segir Snorri Birgisson, lögreglufulltrúi og sérfræðingur í mansalsmálum. Snorri segir að aukin áhersla á málaflokkinn hjá lögreglunni, m.a með nýja mansalsteyminu, sé ein skýring á fleiri ábendingum sem berist embættinu. Einnig hafi aukin vitundarvakning í samfélaginu um mansal og vændi áhrif. Þá eigi fjölgun ferðamanna sem sækja Ísland þátt í auknu framboði vændis. Í gær var greint frá því að tvö mansalsmál á Íslandi væru til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þau tengjast bæði vændi. Fjórir einstaklingar koma þar við sögu og er rannsókn málanna í fullum gangi. Fjöldi kvenna á Íslandi hefur auglýst vændisþjónustu á vefsíðum á netinu. Á einni vefsíðunni eru tæplega tvö hundruð auglýsingar en í mörgum tilfellum fylgja íslensk númer með. Á umræddri vefsíðu er hægt að velja um það að kaupa þjónustu í Reykjavík, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, í Kópavogi og á Akureyri. Í flestum auglýsingunum er tekið fram að konurnar vinni sjálfstætt og segjast þær flestar vera frá öðru landi en Íslandi. Þá bjóða karlmenn einstaka sinnum upp á þjónustu á síðunni.
Tengdar fréttir Eigendur Airbnb-íbúða í miðbænum kvarta undan vændi Leigusali lýsir erfiðri reynslu af vændisstarfsemi í íbúð hans. Mikið um að vændi sé auglýst í miðborg Reykjavíkur á netinu. Sjaldgæft er að þeir sem selja sig leiti til lögreglu eða veiti upplýsingar. Leigusalar vilja meira samstarf. 18. október 2016 07:00 Lögregla fær ábendingar um vinnumansal vikulega Ábendingum um mansal á vinnumarkaði til lögreglu hér á landi frá almenningi hefur fjölgað mikið á undanförnum mánuðum. 14. október 2016 20:00 Tvö mansalsmál hérlendis tengd umfangsmikilli lögregluaðgerð í Evrópu Tvö mansalsmál á Íslandi tengjast gríðarlega umfangsmikili lögregluaðgerð í Evrópu sem fór fram á dögunum. 19. október 2016 15:09 Mest lesið Bein útsending: Formenn flokka funda með forseta Íslands Innlent Segja ásakanir „uppspuna frá rótum“ og „efni í hryllingsmynd“ Innlent „Þetta verður alger Kleppur“ Innlent „Þriðja banatilræðinu“ gegn Trump afstýrt Erlent Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn Innlent Segir Svandísi aðeins eiga einn kost eftir „svipugöng niðurlægingar“ Innlent Pallborðið: Hvað segir stjórnarandstaðan um útspil Bjarna? Innlent „Mér gæti ekki verið meira sama um alla spekingana“ Innlent Annar fyrrverandi Miðflokksmaður til liðs við Arnar Þór Innlent „Svívirðileg móðgun við kennara“ Innlent Fleiri fréttir Allar líkur á að Halla samþykki og stjórnin sitji fram að kosningum Blönduð leið líkleg hjá Viðreisn og barátta um oddvitasætin „Við erum ekkert ofboðslega hrifin af þessari dramatík“ Staðan óljós eftir atburðarás gærdagsins Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn Hnífstunguárás í gistiskýlinu „Við þurfum að flýta okkur hægt í þessari stöðu“ Það henti VG að vera í „svolitlum slag“ við Sjálfstæðisflokkinn Skondið að sjá ágreininginn koma upp á yfirborðið Stuttur tími til að „komast í kjólinn fyrir jólin“ Pallborðið: Hvað segir stjórnarandstaðan um útspil Bjarna? Óvissa í efnahagslífinu og erfitt að sjá að verðbólga hjaðni nú Annar fyrrverandi Miðflokksmaður til liðs við Arnar Þór Forseti fundar með formönnum Uppstilling á framboðslista „ekki A-kostur“ „Svívirðileg móðgun við kennara“ „Mér gæti ekki verið meira sama um alla spekingana“ Frank Walter Sands er fallinn frá „Þetta verður alger Kleppur“ Gerir grein fyrir ákvörðun sinni síðar í vikunni Segja ásakanir „uppspuna frá rótum“ og „efni í hryllingsmynd“ Óvenjulegt ef forseti féllist ekki á ósk um þingrof Segir Svandísi aðeins eiga einn kost eftir „svipugöng niðurlægingar“ Bein útsending: Formenn flokka funda með forseta Íslands Líkamsárás með hníf og ölvaðir unglingar Hætt að hugsa um það sem liðið er og horfa fram á við „Ennþá í töluverðu óvissuástandi um framvinduna“ Rollubingó og hrútasýning á Flúðum Svandís safnar sjálfboðaliðum: „Ég bið ykkur um aðstoð” Má gera ráð fyrir að Halla ræði við formenn allra flokka Sjá meira
Eigendur Airbnb-íbúða í miðbænum kvarta undan vændi Leigusali lýsir erfiðri reynslu af vændisstarfsemi í íbúð hans. Mikið um að vændi sé auglýst í miðborg Reykjavíkur á netinu. Sjaldgæft er að þeir sem selja sig leiti til lögreglu eða veiti upplýsingar. Leigusalar vilja meira samstarf. 18. október 2016 07:00
Lögregla fær ábendingar um vinnumansal vikulega Ábendingum um mansal á vinnumarkaði til lögreglu hér á landi frá almenningi hefur fjölgað mikið á undanförnum mánuðum. 14. október 2016 20:00
Tvö mansalsmál hérlendis tengd umfangsmikilli lögregluaðgerð í Evrópu Tvö mansalsmál á Íslandi tengjast gríðarlega umfangsmikili lögregluaðgerð í Evrópu sem fór fram á dögunum. 19. október 2016 15:09