Hólmfríður spilar líklega í Pepsi-deildinni á næstu leiktíð Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. nóvember 2016 10:30 Hólmfríður Magnúsdóttir er líklega á heimleið. vísir/vilhelm
Hólmfríður Magnúsdóttir, landsliðskona í fótbolta, íhugar það alvarlega að koma aftur heim og spila í Pepsi-deild kvenna í fótbolta en þetta kemur fram í viðtali við hana í Morgunblaðinu í dag. Hólmfríður hefur spilað sem atvinnumaður hjá Avaldsnes í Noregi síðan 2012 en hún tilkynnti tárvot í viðtali eftir lokaumferðina um helgina að hún væri búin að spila sinn síðasta leik fyrir norska liðið.Sjá einnig:Hólmfríður barðist við tárin í tilfinningaþrungnu viðtali „Nokkur lið hafa þegar haft samband frá Íslandi og það kemur vel til greina að koma heim, þar sem deildin hefur verið jöfn og er búin að styrkjast,“ segir Hólmfríður við Morgunblaðið. Hún er uppalin KR-ingur en spilaði átta leiki fyrir Val og skoraði sex mörk sumarið 2011 áður en hún fór út. Hólmfríður kom til Avaldsnes þegar liðið var í B-deildinni en þá kom þar inn maður sem hefur látið mikla fjármuni í félagið. Hann er að hætta núna og fékk Hólmfríður samningstilboð sem var einfaldlega ekki nógu gott, að hennar sögn. Þórunn Helga Jónsdóttir spilar einnig með Avaldsnes en hún er líklega á förum líkt og Hólmfríður. „Við erum margar á förum,“ segir Hólmfríður Magnúsdóttir.. Avaldsnes hafnaði í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar annað árið í röð í baráttu við meistara síðustu tveggja ára, Lilleström.
Fótbolti á Norðurlöndum Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Ég er mögulega búinn að spila minn síðasta leik“ Íslenski boltinn Sjáðu þegar dómarinn vísaði ljósmyndara Víkings af velli Íslenski boltinn Uppgjörið: Vestri - KR 2-0 | Vestri dró Vesturbæinn niður í fallbaráttuna Íslenski boltinn Bein útsending: Motul torfæran Sport Salah sjóðheitur af stað að vanda Enski boltinn „Ansi mikið breytt“ með komu Slots Enski boltinn Íslendingar á Englandi: Jóhann Berg og Willum Þór á skotskónum Enski boltinn Havertz og Saka afgreiddu Úlfana Enski boltinn „Ekki gott að við séum með 43 leikmenn“ Enski boltinn Durán sökkti Hömrunum Enski boltinn Fleiri fréttir Ótrúleg endurkoma Milan Slot sammála Klopp varðandi hádegisleiki Hákon Arnar kom inn fyrir Angel Gomes sem meiddist illa Í beinni: Valencia - Barcelona | Nýtt upphaf hjá Börsungum Messías bjargaði stigi fyrir Genoa Durán sökkti Hömrunum „Kjaftshögg þegar þú færð á þig mark og ert búinn að vera sterkari aðilinn“ „Eftir það fannst mér leikurinn vera nákvæmlega eins og við vildum hafa hann“ Uppgjörið: Vestri - KR 2-0 | Vestri dró Vesturbæinn niður í fallbaráttuna Íslendingar á Englandi: Jóhann Berg og Willum Þór á skotskónum Milner sló met Giggs og tíu Newcastle-menn lönduðu sigri Havertz og Saka afgreiddu Úlfana Bomba frá Selmu og Ísak skoraði gegn toppliðinu „Ansi mikið breytt“ með komu Slots Sagði eyrnabólgu skýra fjarveru Sancho Salah sjóðheitur af stað að vanda „Ekki gott að við séum með 43 leikmenn“ Sjáðu þegar dómarinn vísaði ljósmyndara Víkings af velli Myndaveisla: Mjólkin flæddi þegar Valskonur fögnuðu bikartitlinum „Ég er mögulega búinn að spila minn síðasta leik“ „Gefur okkur bara meiri eld í það að taka stóra bikarinn“ „Við erum bikarmeistarar þannig það skiptir ekki máli“ „Blikaleikir eru aldrei búnir fyrr en það er búið að flauta af“ „Það sjá allir hve mikilvægir varamenn eru“ Uppgjörið: Sanngjarnt þegar Valskonur tryggðu sér bikarinn Zirkzee hetjan í sínum fyrsta leik Frönsku landsliðsmennirnir tryggðu PSG sigur í fyrsta leiknum án Mbappe Spánverji til Vestra þremur dögum eftir að glugginn lokaði „Við þekkjum hvort annað algjörlega út og inn“ Albert kynntur til leiks í Flórens Sjá meira