Liverpool rasskellti Watford og komst í toppsætið | Sjáðu mörkin Kristinn Páll Teitsson skrifar 6. nóvember 2016 16:00
Lærisveinar Jurgen Klopp unnu öruggan 6-1 sigur á Watford á heimavelli í dag en með sigrinum lyfti Liverpool sér upp í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar fyrir landsleikjahlé. Eftir jafntefli Manchester City og Arsenal í gær var það ljóst að sigur myndi þýða að Liverpool kæmist í toppsætið fyrir síðasta landsleikjahlé ársins. Liverpool var mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og komst verðskuldað 2-0 yfir með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla með mörkum Sadio Mane og Philippe Coutinho. Emre Can bætti við þriðja marki Liverpool undir lok fyrri hálfleiks eftir sendingu Adam Lallana og gerði út um leikinn en sóknarmenn Liverpool voru ekki hættir. Roberto Firminho bætti við fjórða marki Liverpool á 57. mínútu og aðeins þremur mínútum síðar bætti Mane við öðru marki sínu og fimmta marki Liverpool. Watford tókst að skora sárabótarmark á 75. mínútu þegar hollenski bakvörðurinn Daryl Janmaat lagði boltann í hliðarnetið en sigurinn var aldrei í hættu. Hollenski miðjumaðurinn Georginio Wijnaldum sem kom inn af bekknum hjá Liverpool bætti við sjötta marki Liverpool í uppbótartíma. Þetta var níundi leikurinn í röð án ósigurs hjá Liverpool en Liverpool hefur skorað flest mörk í deildinni að 11 leikjum loknum, alls 30 mörk.
Enski boltinn Mest lesið Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti Tárvot Ásta sátt í hjarta sínu með ákvörðunina Íslenski boltinn Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Enski boltinn UEFA hefur rannsókn vegna kvartana Tel Aviv Fótbolti Mældu tímann í Kórnum: „Mér finnst þetta alveg galið“ Íslenski boltinn Ótrúlegir vítadómar í Þýskalandi: Tóku boltann upp tvisvar í sama leiknum Fótbolti Konaté mætti með nýstárlega grímu til æfinga Fótbolti Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Enski boltinn Njarðvík semur við eina unga og efnilega Körfubolti Gylfi Þór ekki í hóp Vals í gær en á landsliðsæfingu í dag Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Sjá meira