Innlent

Lögreglan vill ná tali af manni eftir að erindi hans gleymdist vegna annríkis

Birgir Olgeirsson skrifar
Lögreglan greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.
Lögreglan greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni. Vísir/HARI
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af karlmanni, sem kom að lögreglustöðinni á Dalvegi 18 í Kópavogi síðdegis síðastliðinn sunnudag, 30. október, eða um kl. 17.50.

Lögreglan greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni en segir þar að vegna annríkis hafi ekki að taka niður fullnægjandi upplýsingar í tengslum við erindi mannsins og er hann beðinn um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000.

Viðkomandi getur einnig haft samband með tölvupósti á netfangið thora.jonasdottir@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×