Fótbolti

Eins leiks bann fyrir að veðja á leiki

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Barton í leik með Rangers.
Barton í leik með Rangers. vísir/getty
Vandræðagemsinn Joey Barton var í dag dæmdur í eins leiks bann af aganefnd skoska knattspyrnusambandsins.

Ástæðan fyrir banninu er sú að Barton var að veðja á leiki. Hann veðjaði á 44 leiki frá 1. júlí til 15. september á þessu ári.

Samkvæmt reglum skoska sambandsins mega leikmenn þar í landi ekki veðja á leiki neins staðar í heiminum. Hann er þó ekki sagður hafa veðjað á leiki eigin liðs.

Samningi Barton við Glasgow Rangers var rift fyrr í þessum mánuði. Hann lék aðeins átta leiki fyrir félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×