Dómari í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að Brendan Dassey, sem kom fyrir í þáttunum Making a Murderer, skuli tafarlaust sleppt úr haldi.
Dómstóll felldi í sumar úr gildi lífstíðardóm yfir Dassey sem dæmdur var fyrir morðið á Teresa Halbach, 25 ára ljósmyndara, árið 2005. Saksóknarar hafa áfrýjað ákvörðun dómstólsins.
Frændi hins 27 ára Dassey, Steven Avery, situr enn inni fyrir sama morð, en hann hlaut einnig lífstíðardóm. Dassey var sextán ára á þeim tíma sem Halback var myrt.
Í frétt BBC segir að dómarinn William Duffin hafi úrskurðað að Dassey skuli sleppt á meðan málið hefur sinn gang í réttarkerfinu, en að eftirlit skuli haft með honum.
Dassey þarf að greina yfirvöldum frá því eigi síðar en á morgun hvar hann ætli sér að dvelja, nú þegar honum hefur verið sleppt. Þá er honum meinað að vera í samskiptum við fjölskyldu Halback og frænda sinn Avery.
Mál Dassey og Avery hefur vakið gríðarlega athygli eftir sýningu Making a Murderer. Þættirnir voru frumsýndir á Netflix í desember síðastliðnum og hafa vakið heimsathygli.
Dómari úrskurðar að Brendan Dassey skuli tafarlaust sleppt úr haldi
Tengdar fréttir
Lífstíðardómur yfir Brendan Dassey felldur úr gildi
Mál Brendan Dassey var tekið fyrir í þáttaröðinni vinsælu, Making a Murderer.
Fleiri þættir af Making a Murderer
Þættirnir, sem fjalla um þá Steven Avery og Brendan Dassey nutu gífurlegra vinsælda í fyrra.
Lögfræðingur Steven Avery segist hafa ný sönnunargögn undir höndum
Mál Steven Avery sem fjallað var um í heimildaþáttunum Making a Murderer gæti ratað aftur í dómsstóla.
Beiðni um áfrýjun í máli Steven Avery fyrir dómstóla í lok ágúst
Nýr lögfræðingur segist hafa nýtt vitni og ný sönnunargögn í málinu. Avery sagður bjartsýnn á að losna úr fangelsi.