Enski boltinn

Koeman hefur áhuga á landa sínum hjá Man Utd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Everton, hefur áhuga á að fá Memphis Depay til Bítlaborgarliðsins.

Memphis hefur fengið fá tækifæri með Manchester United á tímabilinu og Hollendingurinn gæti verið á förum frá félaginu.

Koeman er áhugasamur um að fá landa sinn til Everton sem situr í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

„Ég myndi vilja fá hann,“ sagði Koeman í samtali við hollenska fjölmiðla.

„Hann er áhugaverður leikmaður sem býr yfir miklum hæfileikum. Hann þarf bara að spila,“ bætti Koeman við.

Man Utd greiddi PSV Eindhoven 25 milljónir fyrir Memphis í fyrra. Memphis skoraði sjö mörk í 45 leikjum fyrir enska liðið á síðasta tímabili en náði ekki að sýna sínar bestu hliðar.

Í vetur hefur Memphis komið lítið við sögu og José Mourinho, knattspyrnustjóri Man Utd, virðist hafa litla trú á honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×