Enski boltinn

Viðtal Messunnar við Jóa Berg eftir leikinn við Man. City

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messan er nýkomin heim frá Englandi þar sem Messudrengir hittu okkar menn í enska boltanum og fleiri góða til.

Messan var mætt á leik Burnley og Man. City um síðustu helgi þar sem Jóhann Berg Guðmundsson haltraði af velli.

„Svona er fótboltinn og þetta er svekkjandi. Ég hef ekki hugmynd um hvað ég verð lengi frá,“ sagði Jóhann Berg við Gumma Ben eftir leikinn.

„Þetta er mjög pirrandi og erfitt að taka þessu. Ég verð bara að koma sterkur til baka. Ég hef verið í fínu formi með Burnley og þetta er því hundleiðinlegt.“

Jóhann Berg áritaði síðan treyju sína fyrir Messuna og Messan er að gefa treyjuna.

Sjá má viðtalið og innslagið hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×