Erlent

Snjór í Tókíó í fyrsta skipti í 54 ár

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Ekki hefur snjóað í stórborginni í nóvember í heil fimmtíu og fjögur ár.
Ekki hefur snjóað í stórborginni í nóvember í heil fimmtíu og fjögur ár.
Íbúar í Tókíó vöknuðu upp við það í morgun að snjóað hafði í nótt. Þetta kom fólki þar í borg verulega á óvart enda hefur ekki snjóað í stórborginni í nóvember í heil fimmtíu og fjögur ár.

Meðalhitastigið í Tókíó á þessum árstíma er enda tíu til sautján gráður á celsíus.

Snjórinn tók þó fljótt upp en engu að síður varð nokkur röskun á samgöngum í borginn sökum veðursins.

vísir/epa



Fleiri fréttir

Sjá meira


×