Fótbolti

Myndband af drykkjufótbolta slær í gegn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Afar áhugavert myndband hefur farið víða um netið en það sýnir knattspyrnuleik með ölvuðum knattspyrnumönnum.

Myndbandið kemur frá Noregi og heitir einfaldlega „Drunk football“.

Í umræddum leik mættust tvö lið sem eru skipuðum drukknum leikmönnum. Reglurnar eru allar þær sömu og í hefðbundinni knattspyrnu nema að mörk eru ekki skráð gild nema að markaskorarinn sé visst drukkinn.

Myndbandið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en þegar þetta er skrifað hafði það verið spilað á Youtube í meira en hálf milljón skipti.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×