Landsleikirnir á móti Tékkum og Úkraínumönnum afdrifaríkir fyrir Aron Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. nóvember 2016 08:00 Aron Pálmarsson meiddist á móti Tékkum. Vísir/Ernir
Aron Pálmarsson hefur ekki spilað með ungverska liði sínu Veszprém eftir landsleikjahléið í byrjun nóvember. Ástæðan eru nárameiðsli sem hann varð fyrir í leiknum við Tékka en þau ágerðust síðan út í Úkraínu. Ísland vann Tékka í Laugardalshöllinni en og tapaði svo fyrir Úkraínumönnum þremur dögum síðar. Aron skoraði tíu mörk í leikjunum tveimur þar af sex mörk í Úkraínu. Aron þurftu reyndar 14 skot til að skora mörkin sín sex í Úkraínuleiknum. „Það er bólga í sin í náranum sem er að angra mig. Ég varð fyrir þessum meiðslum í leiknum á móti Tékkunum í Höllinni og þau ágerðust síðan eftir leikinn við Úkraínu,“ sagði Aron í viðtali við Guðmund Hilmarsson í Morgunblaðinu. Þrátt fyrir meiðslin spilaði Aron báða leikina og tók meðal annars ruðning á Tékkana í lokasókn þeirra en þau varnartilþrif innsigluðu íslenskan sigur. „Þetta horfir nú allt til betri vegar. Ég finn dagamun á mér og stefni á að spila í París um næstu helgi,“ bætti Aron við en framundan er Meistaradeildarslagur á milli Veszprém og París. Aron segist hafa ákveðið að taka enga áhættu með að byrja of snemma en hann hefur verið í stanslausri meðhöndlun síðan í leiknum á móti Úkraínumönnum sem fór fram 5. nóvember síðastliðinn. Það kom einnig fram í frétt Guðmundar Hilmarssonar að Aron ætli ekki að taka ákvörðun um framtíð sína fyrr en í sumar. Hann er með samning hjá Veszprém út næstu leiktíð en vitað er af miklum áhuga frá stórliðum Kiel, París SG og Barcelona. Það gæti því verið mikilvægt fyrir Aron að sýna sig og sanna í leiknum í París um helgina hafi hann áhuga á að spila með franska liðinu í framtíðinni.Aron Pálmarsson í leik með ungverska liðinu Veszprém.Vísir/Getty
Handbolti Mest lesið Berglindi sagt upp í síma: „Kom mér mjög á óvart“ Íslenski boltinn Heiglar sem ráðast á vinalega Íslendinginn Fótbolti Haaland að verða pabbi Fótbolti Bellamy: Jói lyklakippan en kann alveg að tuða Fótbolti Grikkir vildu ekki spila við Englendinga vegna fráfalls Baldocks Fótbolti Minnist Baldocks með hlýju: „Honum þótti alltaf vænt um Vestmannaeyjar“ Fótbolti „Draumur frá því ég var lítill“ Fótbolti Ben Davies: Synd að hafa ekki spilað með Gylfa Fótbolti „Andlega lúinn“ Jón Daði færist nær Bestu deildinni Íslenski boltinn Miami Heat nefna völlinn eftir Pat Riley Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir markahæstir í tapi Toppliðið tapaði og Afturelding fór á toppinn Eyjamenn sigu fram úr í lokin Bjarki Már með þrjú mörk í stórsigri Veszprém „Ég veit að næsta lyftingaræfing verður öflug hjá þeim“ Valsmenn lágu í valnum eftir góða byrjun „Aðalmunurinn hvernig líkamlegir burðir eru“ FH átti erfitt uppdráttar án lykilleikmanna Vandaverk vængbrotinna FH-inga: „Gefum allt í botn“ Ómar Ingi frábær í öruggum sigri Magdeburg Orðaður við Ísland í fyrra en virðist taka við Svíum Haukar unnu einvígið með 35 marka mun Valskonur flugu áfram í aðra umferðina Arnór lét til sín taka í þriðja sigri Fredericia í röð Óðinn Þór öflugur ÍBV sótti sigur í Garðabæinn Risasigrar hjá Val og Haukum Selfoss komið á blað Fjölnir með frábæran sigur á Stjörnunni Uppgjörið: FH - Valur 23-30 | Valur á flugi og FH ekki eins án Arons Sigursteinn Arndal: FH liðið langt frá sínu besta Grótta tyllti sér á toppinn og KA fékk fyrstu stigin Magdeburg missti heimsmeistaratitilinn „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Nítján marka stórsigur hjá Haukum Elliði markahæstur, öruggt hjá Andra og Andreu Óðinn markahæstur í toppslagnum Uppgjörið: Fram - Valur 25-29 | Valur vann stórveldaslag Íslendingaliðið með fullt hús stiga eftir fimm umferðir Sjá meira