Erlent

Dæmdur í fangelsi 27 árum eftir að hafa myrt 11 ára gamlan dreng

Birgir Olgeirsson skrifar
Hvarf Jacobs vakti mikla athygli á sínum tíma í Minneapolis en hér má sjá áhorfendur á leik Minnesota Vikings kalla eftir upplýsingum um Jacob á sínum tíma.
Hvarf Jacobs vakti mikla athygli á sínum tíma í Minneapolis en hér má sjá áhorfendur á leik Minnesota Vikings kalla eftir upplýsingum um Jacob á sínum tíma. Vísir/Getty
Maður sem játaði að hafa numið ellefu ára gamlan dreng á brott og myrt hann fyrir 27 árum hefur verið dæmdur til 20 ára fangelsisvistar fyrir vörslu á barnaklámi.

Í september síðastliðnum leiddi Danny Heinrich, 53 ára, lögreglumenn að staðnum þar sem hann gróf lík drengsins, Jacob Wetterling.

Jacob Wetterling var á leið heim til sín frá myndbandaleigu, ásamt bróður sínum og vini, þegar grímuklæddur maður vopnaður skammbyssu nam hann á brott í borginni St Joseph árið 1989.

Grunur yfirvalda beindist fljótlega að Heinrich við rannsókn málsins en hann hélt staðfastlega fram sakleysi sínu. Lögregluyfirvöld hófu aftur rannsókn á málinu í október í fyrra og sögðu Heinrich þá vera einn af þeim sem yrði rætt aftur við.

Lögreglan fann í kjölfarið barnaklám við leit á heimili hans.

Heinrich gerði samkomulag um mildari dóm gegn því að leiða lögreglumenn að jarðneskum leifum Wetterlings.

Í dómsal í september síðastliðnum veitti hann hrollvekjandi lýsingar á því hvernig hann nam drenginn á brott og myrti hann.

Foreldrar Jacobs hlustuðu á framburð Heinrich sem sagði Jacob hafa spurt hvað hann hefði gert af sér á meðan Heinrich dró hann inn í bíl.

Heinrich fór með drenginn að grjótnámu þar sem hann veittist að honum áður en hann skaut hann í höfuðið.

Hann gerði samkomulag við yfirvöld að honum yrði ekki refsað fyrir að myrða drenginn gegn játningu og að vísa lögreglumönnum á jarðneskar leifar hans.

Hann var hins vegar fundinn sekur um vörslu barnakláms í Minneapolis í dag. Hann bað foreldra drengsins afsökunar og sagðist virkilega sjá eftir illvirkjum sínum. Hann sagði þeim að glæpur hans væri viðbjóðslegur og ófyrirgefanlegur. 

Fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC greinir frá því að Heinrich gæti losnað úr fangelsi fyrir eftir sautján ár en yfirvöld í Minnesota-ríki gætu hins vegar komið í veg fyrir það. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×