Dæmdur í fangelsi 27 árum eftir að hafa myrt 11 ára gamlan dreng Birgir Olgeirsson skrifar 21. nóvember 2016 23:34 Hvarf Jacobs vakti mikla athygli á sínum tíma í Minneapolis en hér má sjá áhorfendur á leik Minnesota Vikings kalla eftir upplýsingum um Jacob á sínum tíma. Vísir/Getty
Maður sem játaði að hafa numið ellefu ára gamlan dreng á brott og myrt hann fyrir 27 árum hefur verið dæmdur til 20 ára fangelsisvistar fyrir vörslu á barnaklámi. Í september síðastliðnum leiddi Danny Heinrich, 53 ára, lögreglumenn að staðnum þar sem hann gróf lík drengsins, Jacob Wetterling. Jacob Wetterling var á leið heim til sín frá myndbandaleigu, ásamt bróður sínum og vini, þegar grímuklæddur maður vopnaður skammbyssu nam hann á brott í borginni St Joseph árið 1989. Grunur yfirvalda beindist fljótlega að Heinrich við rannsókn málsins en hann hélt staðfastlega fram sakleysi sínu. Lögregluyfirvöld hófu aftur rannsókn á málinu í október í fyrra og sögðu Heinrich þá vera einn af þeim sem yrði rætt aftur við. Lögreglan fann í kjölfarið barnaklám við leit á heimili hans. Heinrich gerði samkomulag um mildari dóm gegn því að leiða lögreglumenn að jarðneskum leifum Wetterlings. Í dómsal í september síðastliðnum veitti hann hrollvekjandi lýsingar á því hvernig hann nam drenginn á brott og myrti hann. Foreldrar Jacobs hlustuðu á framburð Heinrich sem sagði Jacob hafa spurt hvað hann hefði gert af sér á meðan Heinrich dró hann inn í bíl. Heinrich fór með drenginn að grjótnámu þar sem hann veittist að honum áður en hann skaut hann í höfuðið. Hann gerði samkomulag við yfirvöld að honum yrði ekki refsað fyrir að myrða drenginn gegn játningu og að vísa lögreglumönnum á jarðneskar leifar hans. Hann var hins vegar fundinn sekur um vörslu barnakláms í Minneapolis í dag. Hann bað foreldra drengsins afsökunar og sagðist virkilega sjá eftir illvirkjum sínum. Hann sagði þeim að glæpur hans væri viðbjóðslegur og ófyrirgefanlegur. Fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC greinir frá því að Heinrich gæti losnað úr fangelsi fyrir eftir sautján ár en yfirvöld í Minnesota-ríki gætu hins vegar komið í veg fyrir það.
Mest lesið Umdeild sameining sánuklefa: „Mér finnst allir vera óánægðir með þetta“ Innlent Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Erlent Flugfreyjan frestaði íbúðakaupum og fórnaði sparnaðinum í flugnám Innlent Ólafur Ragnar um Davíð Oddsson: „Hugsar og hegðar sér eins og fasisti“ Innlent Bjóða upp á sértíma í líkamsrækt fyrir trans og kynsegin Innlent Flogið yfir Goðabungu eftir stóra skjálftann Innlent Gríðarlega umfangsmikið matskerfi á leið inn í skólakerfið Innlent Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Innlent Helga Mogensen látin Innlent Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Innlent Fleiri fréttir Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Stefnir í sögulegan sigur hægriöfgaflokks í Austurríki Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Sjá meira