Innlent

Missti putta við störf á frístundaheimili: Borgin og KR sýknuð af kröfum um skaðabótaábyrgð

Atli Ísleifsson skrifar
Umrædd girðing var 2,08 metrar á hæð.
Umrædd girðing var 2,08 metrar á hæð. Vísir/Valli
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Reykjavíkurborg og Knattspyrnufélag Reykjavíkur af kröfu um skaðabótaábyrgð á líkamstjóni sem kona varð fyrir í vinnuslysi á frístundaheimili í vesturbæ Reykjavíkur í maí 2014.

Slysið varð þegar konan, sem var starfsmaður á frístundaheimilinu, tók eftir því að drengur hafði misst bolta yfir girðingu og á lokað svæði sem umlukið var veggjum frístundaheimilisins og girðingu. Drengurinn ætlaði upphaflega að sækja boltann sjálfur en starfsmaðurinn bannaði honum það. Fyrst hafi konan athugað hvort hlið girðingarinnar, sem var 2,08 metrar á hæð, væri lokað og var það sagt eingöngu opnanlegt að innan.

„Stefnandi hóf að klifra upp girðinguna sem hún kveður hafa verið algengt að starfsmenn gerðu í slíkum tilvikum. Þegar hún hafi verið hálfnuð upp hafi hún ákveðið að hætta við og sleppti takinu. Þegar hún sleppti takinu á girðingunni festist giftingarhringur á baugfingri vinstri handar í einum tein girðingarinnar með þeim afleiðingum að fingurinn rifnaði af,“ segir í dómnum.

Þar segir að í ljósi hæðar girðingarinnar og þeirrar reynslu sem stefnandi var búin að afla sér í starfinu, verði ekki ályktað á annan veg en þann að henni hafi mátt vera ljós sú hætta sem stafaði af því að klifra upp á girðingu, sem annars vegar var óheimilt að klifra í samkvæmt umgengnisreglum á íþróttasvæðinu, og sem hins vegar var ætlað að varna því að fólk færi inn á svæðið. Einnig segir að slysið verði ekki rakið til þess að skort hafi á öryggisráðstafanir af hálfu stefnda á svæðinu.

„Verður því talið að orsök slyssins í máli þessu megi aðeins rekja til háttsemi og óhappatilviks stefnanda en stefnandi hefur ekki sýnt fram á orsakatengsl á milli meints skorts á að mæta öryggiskröfum eða ófullnægjandi aðbúnaðar, við óhapp hennar. Verður því slysið, [...] aðeins rakið til óaðgæslu af hennar hálfu en ekki til atvika, athafna eða athafnaleysis er varða stefndu,“ segir í dómnum.

Málskostnaður var felldur niður en allur gjafsóknarkostnaður stefnanda, þar með talin málflutningsþóknun lögmanns hennar 1.000.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×